Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1972, Side 40

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1972, Side 40
Ráðnir framkvæmdastjórar landshlutasamtakanna Nýlega hafa verið ráðnir fram- kvæmdastjórar að fjórum lands- lilutasamtakanna. Axel Jónsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi, að Sam- tökum sveitarfélaga i Reykjanes- umdæmi, Sigfinnur Sigurðsson, borgarhagfræðingur, að Sambandi sveitarfélaga í Suðurlandskjördæmi, Jóhann T. Bjarnason, fyrrv. kaup- félagsstjóri á ísafirði, að Fjórð- ungssambandi Vestfirðinga og Ingi- mundur Magnússon að Sambandi sveitarfélaga í Austurlandskjör- dæmi. Sigfinnur hefur áður verið kynnt- ur í Sveitarstjórnarmálum, en hinir verða kynntir hér á eftir. Axel Jónsson er fæddur í Reykja- vík 8. júní 1922, lauk gagnfræða- prófi árið 1938 og hefur unnið ár- um saman við bifreiðaakstur, verið starfsmaður og síðan forstöðumað- ur Sundlauga Reykjavíkur, og vann nokkur ár á skrifstofu Sjálfstæðis- SVEITARSTJÓRNARMÁL flokksins og síðast hjá Almanna- vörnum. Axel hefur verið bæjarfulltrúi og bæjarráðsmaður í Kópavogskaup- stað síðan 1962 eða í 9 ár. Vara- alþingismaður samfellt frá árinu 1963 og hefur setið meira og minna á Alþingi þessi ár. Kvæntur er Axel Guðrúnu Gísla- dóttur, og eiga þau tvö börn. Jóhann T. Bjarnason er fæddur á Þingeyri 15. febrúar 1929, sonur Kristjönu H. Guðmundsdóttur og Bjarna Jóhannssonar þar. Starfaði hjá Kaupfélagi Dýrfirðinga á Þing- eyri, unz hann settist í Samvinnu- skólann, lauk prófi úr framhalds- deild hans árið 1951. Stundaði síð- an nám í enska samvinnuskólanum í eitt ár. Hóf starf við kaupfélaga- eftirlitið Iijá SÍS, starfaði hjá Kaup- félagi Hafnfirðinga 1952—1953, var kaupfélagsstjóri í Vestmannaeyjum 1953—1957 og í Kaupfélagi ísfirð- inga á ísafirði frá 1957 þar til í janúarmánuði 1972, er liann setti upp bókhaldsskrifstofu á ísafirði. Kvæntur er Jóhann Sigrúnu Stefánsdóttur frá Hólum í Dýra- firði, og eiga þau tvo syni. Ingimundur Magnússon er fædd- ur á Ingveldarstöðum í Hjaltadal 23. nóvember 1939, sonur Sigríðar Ingimundardóttur og Magnúsar Jónssonar, bónda þar. Vann við landbúnaðarstörf til 1956 og sjó- mennsku til 1959. Starfaði hjá SÍS um skeið sumarið 1960, en stund- aði síðan nám í Búnaðarskólanum á Hvanneyri 1960—1961. Hóf störf við lnisasmíðar árið 1961 og síðan nám, lauk sveinsprófi árið 1966. Próf frá Meistaraskólanum 1967. Lærði síðan áætlanagerð og kostn- aðarreikning hjá fyrirtækinu Reed í Bretlandi og lauk prófi í því 1968. Stundaði nám í vinnuhagræðingu og starfsmatsgerð hér á landi og í Sviss á vegum Alþýðusambands Is- lands og íslenzka álfélaginu 1968— 1969, vann við þau störf svo og starfsmat og mótun bónus-kerfis hjá frantangreindum aðilum og hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Kvæntur er hann Hafdísi Bene- diktsdóttur frá Reynihólum í Ytri- Torfustaðahreppi, og eiga þau þrjár dætur.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.