Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Page 4

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Page 4
„FER ORÐ, ER MUNN LIÐUR“ Af prentfrelsi og fundafrelsi leiðir frelsi manna til að koma saman, tjá hugsanir sínar, gera ályktanir og koma þeim á framfæri opinberlega. Það er nokkuð rík venja, að félagsskapur, sem eitthvað vill láta að sér kveða, geri ályktanir um sitthvað, sem hann telur máli skipta og vill þoka að ákveðnu marki, og er ekkert nema gott um slíkt að segja. Oft ber þetta framtak þann árangur, sem að er stefnt. Engan veginn verður þó fram haldið, að ályktanir funda og félaga veki allajafna þá athygli, sem ætlazt er til og oft á tíðum væri maklegt. Svo er komið, að margir mega helzt ekki heyra á slíkt minnzt og velja „ályktanafarganinu“ miður vinsamleg orð, svo að ekki sé meira sagt. Þetta á sér að vissu leyti eðlilegar skýringar, því að þessi stjórnskipulegi réttur, sem áður var nefndur, hefur verið misnotaður um langt skeið. Fámennir hópar eða klíkur innan stórra samtaka hafa fengið samþykktar í nafni samtakanna ályktanir, sem allur þorri félagsmanna vill ekki við kannast. Forráða- menn sumra samtaka falla í þá freistni að láta sam- þykkja sýknt og heilagt ályktanir um alla skapaða hluti og ekki sízt þá, sem samtökin hafa ekki aðstöðu til að fjalla um fremur en hver annar. Það getur því verið skiljanlegt, að slík vinnubrögð komi óorði á samþykktir funda og félaga yfirleitt, og ekki síður það, þegar verið er að gera álýktanir um hluti, sem allir eru sammála um og skipta því engu máli til framgangs eða fjalla um innri málefni samtaka, sem öðrum koma ekki við. Og þetta reyna menn að fá birt og gengur misjafnlega. Um þetta var þó ekki ætlunin að ræða hér, enda held ég, að ályktanir af slíku tagi njóti þeirrar virð- ingar, sem hæfir. En hitt er öllu verra, að ályktanir um mikilvæg málefni, gerðar af bærum aðilum með formlega réttum hætti virðast oft ekki njóta öllu meiri virð- ingar. Mér virðist ástæðan til þessa nokkuð augljós í flestum tilfellum. Þegar á fund kemur, hættir mönnum mjög til þess að gera alltof margar ál- yktanir og hafa þær oft alltof ýtarlegar, gera ekki mun á aðalatriðum og aukaatriðum. Afleiðingin verður, að mikilvæg meginatriði geta drukknað í orðaflaumi, þau fara fyrir ofan garð og neðan hjá langflestum, missa marks og detta máttlaus niður. Því held ég, að þeir, sem veita forystu félagsskap, þeir, sem vilja vekja athygli á máli, er þeir telja nokkurs virði, ættu að leggja höfuðáherzlu á það að hafa ályktanirnar færri, en markvissari að sama skapi. íslendingasögur hafa að geyma margar meitlaðar setningar, sem seint gleymast. f Vopnfirðingasögu er sú, sem er fyrirsögn þessa greinarkorns: „Fer orð, er munn líður.“ (þ. e. orð berst áfram, er munn sleppir eða þegar mælt hefur verið. Ályktun er eitt form, sem nota má til þess að láta orð berast áfram, en misjafnlega gengur að koma þeim til skila, eins og ég hef minnzt á. Það skyldu menn því gera sér ljóst, að ein stuttorð ályktun, markviss að efni og búningi, vekur hugann fremur og er því málstaðnum til meiri styrktar en margar langlokur um sjálfsagða hluti. 250 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.