Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 39

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 39
GATNAGERÐAR- FRAMKVÆMDIR 1976 OG LÁNVEITINGAR BYGGÐASJÓÐS TIL ÞEIRRA Hér fer á eftir yfirlit um framkvæmdir við gatnagerð i þéttbýli utan Reykjavíkur og Reykjaneskjördæmis á árinu 1976 og lánveitingar Byggðasjóðs til þeirra. Ekki eru með taldir kaupstaðirnir Isafjörður, Akureyri og Vestmanna- eyjar enda hafa þeir ekki tekið upp gatnagerðargjöld, en lánveiting Byggðasjóðs er m. a. bundin því skilyrði, at gatnagerðargjald sé á lagt. Framkvæmda- Lánveiting Sveitarfélag kostnaður (M.kr.) árið 1976 (M.kr.) Akranes 53,3 5,3 Borgarnes 40,4 9,2 Ólafsvík 35,1 8.0 Stykkishólmur 34,5 5,9 Patreksfjörður 28,0 6,0 Flateyri 5,3 2,6 Bolungarvík 5,0 1,3 Hólmavík um 20,5 5,0 Hvammstangi 9,1 Framkvæmda- Lánveiting kostnaður árið 1976 Sveitarfélag (M.kr.) (M.kr.) Blönduós 1,0 2,6 Skagaströnd 20,0 2,6 Sauðárkrókur 86,0 11,3 Ólafsfjörður 34,3 4,7 Dalvík 11,9 4,2 Húsavík 60,5 8,8 Þórshöfn 7,6 Vopnafjörður 23,8 1,8 Seyðisfjörður 30,0 4,5 Neskaupstaður 55,3 5,5 Eskifjörður 9,0 1,2 Reyðarfjörður 22,8 2,1 Fáskrúðsfjörður 5,3 1,6 Breiðdalsvík 7,2 1,3 Djúpivogur 12,0 1,3 Höfn í Hornafirði 14,7 1,6 Vík í Mýrdal 3,9 2,3 Hvolsvöllur 17,0 1,8 Hella 25,1 3,0 Stokkseyri 32,8 4,3 Hveragerði 34,5 Selfoss um 50,0 5,2 Þorlákshöfn 18,6 Samtals 814.5 115,0 GATNAGERÐ Á AUSTURLANDI SUMARIÐ 1976 Þar sem mikil óvissa var um út- hlutun á opinberu fé (25% sjóði) til gatnagerðarframkvæmda, var allur undirbúningur framkvæmda í seinna lagi, og m. a. þess vegna minna framkvæmt en annars hefði verið. 8 sveitarfélög sömdu við Olíumöl h.f. um kaup á malbiki og oliumöl. Mal- bikið var lagt út í Neskaupstað, alls á um 29 þús. fermetra, og mun öll framkvæmdin hafa kostað um 51, millj. króna, en Miðfell h.f. sá um út- lagningu. Hin sveitarfélögin keyptu nær eingöngu olíumöl, samtals rúmlega 7 þús. lestir. Var hún framleidd á Reyðarfirði en steinefnin sótt upp á Hérað. Voru það kostnaðarsamir flutningar. Mikið af olíumölinni var svo flutt á firðina með norsku leigu- skipi. Verulegt magn á enn eftir að leggja út af möl Jjessari, m. a. á Fáskrúðsfirði og á Vopnafirði. Alls mun hafa verið unnið í varanlegri gatnagerð fyrir um 170 millj. króna. Á öðrum þéttbýlisstöðum var nokkuð unnið að undirbúningi, eða fyrir um 28 millj. króna. Þau sveitarfélög munu hafa uppi áform um fram- kvæmdir í varanlegri gatnagerð á árinu 1977. Á síðasta aðalfundi Austurfells h.f. var samþykkt að auka hlutafé þess úr kr. 5 millj. í kr. 10 millj. Það eru ofangreind sveitarfélög, sem standa að þessu fyrirtæki, sem rekur gatna- gerðarvélar. Varanlegt slitlag á vegi er einn merkasti þáttur framfara- og heil- brigðismála hér í fjórðungnum og stendur hugur manna til stórræða. En það er ekki miklu fé úr að spila. Jóhann Klausen, bœjarstjóri. 285 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.