Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 11

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 11
Kirkjan í Ytri-Njarðvík í smíðum. dyri. Forstöðumaður hússins er Guðmundur Ó. Emilsson. Dagvistunarmál Kvenfélagið Njarðvík beitti sér fyrir byggingu dagheimilis og leikskóla. Sveitarfélagið lagði til lóðina frágengna en kvenfélagið og sveitarfélagið kostuðu bygginguna að jöfnu. Auk þess unnu kven- félagskonur mikið sjálfboðastarf við bygginguna. Formaður kvenfélagsins á þeim tíma var frú Guðlaug Karvelsdóttir. Á dagvistunarheimilinu eru nú að jafnaði 60 börn. Forstöðukona er Guðrún Sumarliðadóttir. Ekki má gleyma að geta um barnaleikvöll, sem byggður var í Njarðvík árið 1947. Leikvöllur þessi þótti þá svo mikil nýjung vegna fjölbreytni og alls aðbúnaðar, að tekin var kvikmynd af vellinum, tækjum hans og börnum í leik. Aðalsteinn Hallsson, kennari, ferðaðist síðan um landið með myndina og aðstoðaði ýmsar sveitarstjórnir víða um land við uppbyggingu leikvalla að fyrirmynd Njarðvíkur- vallarins. Nú eru tveir leikvellir í Njarðvík, auk smærri leiksvæða með rólum, söltum o. s. frv. Félagsheimilió Stapi 1 1 " 1— i..... 1 — Kvenfélagið, ungmennafélagið og Njarðvíkur- hreppur stóðu sameiginlega að byggingu félags- heimilisins. Aðaldriffjöðrin í þeim framkvæmdum var Ólafur heitinn Sigurjónsson, en hann var um það leyti formaður ungmennafélagsins og fram- kvæmdastjóri beggja félaganna vegna reksturs „Krossins“, gamla samkomuhússins. Hús þetta var og er enn hið glæsilegasta mannvirki. Höggmynd af Jóni Þorkelssyni í Innri-Njarðvík, en þar var Jón fæddur. Ríkarður Jónsson gerðl myndastyttuna. 257 SVEITARSTJÖRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.