Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 27

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 27
NANARA SAMSTARF BYGGINGARFULLTRÚA Frá ráðstefnu byggingarfulltrúa 1976 Sambandið hélt tveggja daga ráðstefnu 11. og 12. maí, sem sér- staklega var ætluð byggiugarfull- trúum og öðrum, sem fara með byggingarmál af hálfu sveitarfé- laga. Ráðstefnuna sátu nær allir starfandi byggingarfulltrúar sveit- arfélaganna, nokkrir oddvitar, tæknifræðingar og byggingarfull- trúar landshlutanna, auk embættis- manna og framsögumanna eða samanlagt um 70 manns. Við undirbúning ráðstefnunnar var haft náið samstarf við þær stofnanir, sem byggingarfulltrúar eiga samskipti við, svo sem Skipu- lagsstjórn ríkisins, Fasteignamat ríkisins, Húsnæðismálastofnun rík- isins, Rannsóknarstofnun bygging- ariðnaðarins, Iðnþróunarstofnun íslands og Öryggiseftirlit ríkisins. Fulltrúar þessara stofnana fluttu framsöguerindi, tóku þátt í umræð- um og áttu drjúgan þátt i að stuðla að góðum árangri ráðstefnunnar. Byggingarlagafrumvarpið kynnt í bréfi, þar sem boðað var til ráðstefnunnar, var þess sérstaklega getið, að kynntar yrðu á ráðstefn- unni tillögur, sem uppi væru um breytingar á verkefnum byggingar- fulltrúa. Eftir að Páll Líndal, formaður sambandsins, hafði sett ráðstefn- una, flutti Gunnlaugur Finnsson, formaður Heilbrigðis- og félags- málanefndar neðri deildar Alþing- is, framsöguerindi, þar sem hann gerði grein fyrir þeim verkefnum, sem byggingarfulltrúum væri ætl- að að sinna samkvæmt því frum- varpi til nýrra byggingarlaga, sem þá lá fyrir Alþingi. Hann gerði grein fyrir þeim breytingum, sem væntanlega yrðu gerðar á frum- varpinu. Frumvarpið myndi svo verða lagt fram á Alþingi á kom- andi hausti með þessum breyting- um. Samskipti við skipulagsstjórn Zóphónias Pálsson, skipulags- stjóri ríkisins, t-',1aði um samskipti byggingarfulltrúa og Skipulags- stjórnar ríkisins, og var það eftir hádegi fyrri fundardaginn. I há- degisverði, sem sambandið bauð til, flutti Þór Magnússon, þjóð- minjavörður, stutt erindi um varð- veizlugildi húsa og annarra mann- í Húsnæðismálastofnun ríkisins. Handan borðsins eru, talið frá vinstri: Jóhannes Pétursson í Ólafsvík, Hörður Harðarson, tæknifræðingur í Húsnæðismálastofnun, Marteinn Björnsson, Selfossi, Gústaf Jónsson í Garðabæ og Bjarni Pálsson á Selfossi. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.