Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 8

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 8
Féiagsheimilið Stapi. Fyrsta verk hinnar nýju hreppsnefndar var að gera samning við þá bræður Karvel og Þórarinn Ögmundssyni um kaup á rafmagni frá frystihúsi þeirra bræðra og hefja lagningu raflína um þorpið, láta bora eftir vatni og setja vatnsveitu í innra og ytra hverfi, svo og að hefja undirbúning að skóla- byggingu. Allt þetta voru stór verkefni fyrir fátækt hrepps- félag. Fyrsta fjárhagsáætlun hreppsins hljóðaði upp á 100.127 kr. tekjur, og af þeirri upphæð var kr. 9.800 eða tæpum 10% varið til raflagna og raf- lýsingar. Svona mætti lengi telja, en uppbyggingin var hafin og samhugur og samheldni ibúanna átti sinn stóra þátt í, hve fljótt og vel tókst til. Félagsmál Við stofnun hreppsins árið 1942 varð mikil félagsleg bylting í Njarðvíkum, stofnað var kven- félag og ungmennafélag. Bæði þessi félög starfa með miklum þrótti enn þann dag í dag. Félögin hafa verið mikil lyftistöng í öllu menningarlífi staðarins. Fyrir tilstuðlan góðra manna fengu félögin „Krossinn", sem herinn hafði notað sem sjúkraskýli á stríðsárunum. Var húsið gert að samkomuhúsi og starfrækt sem slíkt í nokkur ár, eða þar til félags- heimilið Stapi var tekið í notkun. Félögin tvö ásamt hreppnum stóðu að og kostuðu byggingu félags- 254 heimilisins, sem er hið myndarlegasta hús. Ung- mennafélagið hóf snemma framkvæmdir við gerð íþróttamannvirkja, og var íþróttavöllurinn í Njarð- vík einn fyrsti grasvöllur á landinu. í marz s. 1. afhenti ungmennafélagið Njarðvíkur- kaupstað íþróttamannvirkin til eignar og afnota fyrir æsku byggðarlagsins. Kvenfélagið hefur alla tíð beitt sér fyrir ýmsum líknarmálum. Þeirra stærsta afrek var bygging dag- heimilis fyrir um 60 börn, sem kvenfélagið ásamt sveitarfélaginu byggði af miklum myndarskap. Auk áðurnefndra félaga eru starfandi með miklum þrótti skátafélag og mjög öflug og velútbúin hjálparsveit skáta. Lionsklúbbur Njarðvíkur hefur haldið uppi miklu starfi og komið mörgu.góðu til leiðar. Kirkjumálefni Njarðvík varð sérstakt prestakall á sama tíma og kaupstaðarréttindin fengust. í prestakallinu eru tvær sóknir, Innri-Njarðvíkursókn og Ytri-Njarð- víkursókn. Innri-Njarðvík er gamall kirkjustaður. Þar mun hafa verið kirkja allt frá 11. öld, og er þar nú mjög fögur steinkirkja, sem byggð var fyrir um 90 árum. Þar var á s. 1. ári vígt glaesilegt safnaðarheimili, sem notað er til ýmiss konar félagsstarfsemi. Ytri-Njarðvíkursöfnuður stendur nú í kirkju- byggingu, og er kirkjan nær fokheld. Þetta er hið SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.