Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 10

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 10
256 Grunnskólinn og íþróttahúsið. Skólamál Eitt af fyrstu verkum hreppsnefndarinnar, sem kosin var árið 1942, var að hefja undirbúning að byggingu barnaskóla. Skólinn var vígður 19. des. 1943. Síðan hefur skólinn verið stækkaður tvisvar, fyrst árið 1958 og aftur nýverið. Nú í haust var síðasti áfanginn vígður. Skólinn rúmar nú allan grunn- skólann fyrir Njarðvikur og Hafnir. Nemendur eru liðlega 400. Skólastjóri er Bjarni F. Halldórsson, en hann tók við skólastjórn haustið 1973 af Sigurbirni Ketilssyni, sem hafði verið skólastjóri frá stofnun skólans. Njarðvík er aðili að Fjölbrautaskóla Suðurnesja, sem tók til starfa á s. 1. hausti. Tónlistarskóli var stofnsettur á þessu hausti og eru nemendur 68 í vetur. Skólastjóri er Örn Óskarsson, en auk hans starfa við skólann einn fastráðinn kennari og stundakennarar. Hafin var bygging íþróttahúss árið 1964. 1 húsinu er íþróttasalur 18X34 m að stærð með góðum áhorfendastæðum. Sundlaug er 8X12 metrar, gufubaðstofa er í húsinu, minni æfingasalur og sér- stakur þrekþjálfunarsalur. Sundlaugin var tekin í notkun árið 1970, en íþróttasalurinn árið 1973. Ólokið er við búningsklefa fyrir stóra salinn og and- Sundlaug Njarðvíkur sveitarstjórnarmAl

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.