Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 44

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 44
UPPGJÖR VIÐ RÍKISSJÓÐ VEGNA VERKEFNATILFÆRSLUNNAR Fram hefur komið áður hér í ritinu, m. a. í frásögn af fulltrúaráðsfundi sambandsins í seinasta tölu- blaði, að meiningamunur hefur ríkt um það milli talsmanna sveitarfélaganna annars vegar og fjár- málaráðuneytisins hins vegar, hvernig fara ætti um kostnaðarhlutdeild ríkissjóðs árið 1975 í þeim verk- efnum, sem færð voru frá ríki til sveitarfélaga með lögunum, sem um það efni voru sett í lok þess árs. Fulltrúaráðsfundur sambandsins staðfesti þann skilning stjórnarinnar, að lögin verkuðu ekki aftur fyrir sig þannig að ríkissjóður væri með þeim leystur undan skyldu sinni til að greiða kostnaðarhlutdeild, sem til féll, áður en þau voru sett s. s. í viðhaldi skólabygginga og fleiri þáttum, sem lögin náðu til. Um þetta ágreiningsefni hefur nú tekizt sam- komulag. Að formi til er það gert milli ríkissjóðs og Reykjavíkurborgar, að því tilskildu þó, að stjórn sambandsins mæli með því við önnur sveitarfélög, að þau fallist á efni þess. Samkomulagið er fólgið í því, að ríkissjóður greiði sveitarfélögunum vegna áðurnefndrar ríkishlut- deildar í umræddum verkefnum á árinu 1975 réttar 300 milljónir króna. Þeirri fjárhæð verði skipt á milli allra sveitarfélaga landsins í réttu hlutfalli við íbúatölu þeirra hinn 1. desember 1975 og án tillits til krafna þeirra hvers og eins um endurgreiðslu vegna kostnaðarhlutdeildar ríkissjóðs við umrædd verkefni á árinu 1975. Fjárhæð þessi, sem nemur 1.370 krónum á íbúa, verði greidd sveitarfélögunum á fyrsta ársfjórðungi 1977 eða fyrir lok marzmánaðar næstkomandi. Greiðsla þessi sé lokauppgjör af hálfu ríkissjóðs vegna kröfugerðar sveitarfélaganna í þessum efnum og ekki verði um frekari kröfugerð af þeirra hálfu að ræða í þessu máli. Stjórn sambandsins samþykkti að mæla með þessari lausn við sveitarfélögin. Jafnframt lagði hún til, að þau sveitarfélög, sem ekki fengju með þessari greiðslu bættan sannanlegan tekjumissi vegna niðurfellingar á kostnaðarþátttöku ríkisins, sem af verkefnatilfærslunni leiddi, fengju það, sem á van- taði, greitt með sérstöku aukaframlagi úr Jöfnunar- sjóði sveitarfélaga. Félagsmálaráðuneytið féllst á þessa tilhögun. í ljós hefur komið, að 88 milljónir króna þarf að greiða úr Jöfnunarsjóði til þess að ná framangreindu marki, að öll sveitarfélög fái bættan tekjumissinn vegna verkefnatilfærslunnar, og verða þessar greiðslur sendar sveitarfélögunum fyrstu dagana á nýbyrjuðu ári. 290 HEMILL Á HÆKKUN FASTEIGNASKATTSINS og fasteignatengdra gjalda Alþingi hefur nú hinn 21. desemb- er samþykkt breytingar á tekju- stofnalögunum þess efnis, að á árinu 1977 sé ekki heimilt að hækka gjöld af fasteignum umfram það, sem leyfi- legt hefði verið samkvæmt aðalmati fasteigna, er gilti fyrir 31. desember 1976, að viðbættu 236% áiagi. Heim- ild þessi tekur einnig til notkunar fasteignamatsins til ákvörðunar ann- arra gjalda til sveitarfélaga á árinu 1977, sem reiknuð eru sem hlutfall af fasteignamati. Þá er ennfremur bannað að leggja fasteignaskatt á byggingar á árinu 1977, fyrr en þær hafa verið teknar til afnota eða eru fullgerðar. Samkvæmt áðurgreindu laga- ákvæði og túlkun félagsmálaráðu- neytisins á því er til þess ætlazt, að sveitarfélög leggi á fasteignaskatt ársins 1977 eftir gamla matinu fram- reiknuðu, þ. e. með stuðlinum 3.36 sbr. auglýsingu ráðuneytisins frá 12. nóvember s. 1. Gildir þetta bæði um fasteignaskattinn og öll önnur gjöld, sem við fasteignamat eru miðuð. Noti sveitarfélög á hinn bóginn nýja fast- eignamatið, má fasteignaskattur eða fasteignatengd gjöld í hverju einstöku tilviki ekki fara upp fyrir þessa há- markshækkun. Þetta ber að hafa í huga í sambandi við grein Valdimars Óskarssonar annars staðar í þessu tölublaði. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.