Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 17

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 17
móðir Þuríður, talin jafngömul. Aldurinn kem- ur þó ekki heim við prestsþjónustubækur Hólma í Reyðarfirði, og mun hún aðeins hafa verið tví- tug að aldri, þegar hún giftist. Hins vegar var Mechín systir hennar þá 23 ára. Þær systurnar höfðu víst átt litla sældardaga lengstum í æsku. Þeirra finnst fyrst getið í sálna- registri Hólma 1785, og er Mechín þá fimm ára, en Þuríður tveggja. Foreldrar þeirra voru Sigfús Jónsson og Guðrún Jónsdóttir, þá búandi á Bakkagerði, en höfðu áður búið á Teigargerði. Er því ekki full vissa, á hvorum bænum Þuríður er fædd. Fjórum árum síðar er heimilið í upp- Iausn, og er þá Þuríður tökubarn á Karlsstöð- um, en Mechín á Stuðlum. Árið eftir er faðir þeirra orðinn vinnumaður á Teigargerði ásamt elzta syni sínum, móðir þeirra finnst ekki, en þær niðursetningar og eru það næstu ár, að svo miklu leyti sem sjá má af kirkjubókunum, en þær eru mjög gloppóttar. Árið 1794 t. d. er Þuríður nið- urseta á Karlsstöðum, lesandi, og 1795 sést Mech- ín í Sigmundarhúsum, niðursetningur, þá orðin 15 ára. Síðan er löng eyða, en 1802 er Þuríður komin til Seyðisfjarðar, en Mechín var ýmist á Reyðarfirði eða Eskifirði, þar til hún giftist á Eskifirði 23 ára Jóhanni Biering beyki, sem áður sagði, og eru þau úr sögunni ásamt börnum þeim, sem hún átti með Óla Möller. En Þuríður er sem fyrr sagði komin til Akureyrar og sannlega gift Hans Vilhelm. Voru svaramenn þeirra Jóhann P. Hemmert kaupmaður og Niels Thysen verzlunar- stjóri. í sóknarmannatali Hrafnagilssóknar 1804 eru þau hjón bæði talin, en þá bregður svo við, að frúin er kölluð Maren, hvernig sem á því stendur. Læðist jafnvel að manni sá grunur, að hún hafi Ukfift #orr Cíjorlrn i til önntuliítcSrt ^Kutcoti, trgnrt af (Sarl fbaajlt. Séð yfir Eyjafjörð inn til Akureyrar árið 1865. Teikning eftir Oanann Karl Baagöe, og er myndin gerð eftir teikningu, sem birtist í Dansk lllustrert Tidende árið 1865, og mun ekki hafa birzt annars staðar á prenti fyrr en nú. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.