Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 28
virkja frá sjónarhóli byggingarlist-
ar eða annarra menningarsögu-
legra þátta.
Hjá Húsnæðismálastofnun
ríkisins
Lokaþáttur fyrri fundardagsins
var helgaður húsnæðismálum.
Nokkrir embættismanna Húsnæðis-
málastofnunar ríkisins fluttu þar
framsöguerindi um þá þætti í
starfsemi stofnunarinnar, sem
byggingarfulltrúar eiga aðild að.
Af hálfu stofnunarinnar höfðu eft-
irtaldir framsögu:
Sigurður E. Guðmundsson,
framkvæmdastjóri,
Haraldur V. Haraldsson,
forstöðumaður Tæknideildar,
Magnús Ingi Ingvarsson,
deildarstjóri Tæknideildar,
Hilmar Þórisson,
deildarstjóri í Fjármáladeild.
Eftir rækilegar umræður var
haldið í húsakynni Húsnæðismála-
stofnunarinnar að Laugavegi 77,
skoðaðar teikningar og starfsað-
staða þeirra, sem þar vinna. Að
þvi loknu var sezt að sameiginleg-
um kvöldverði í boði húsnæðis-
málastjórnar. Sigurður Guðgeirs-
son, þáv. formaður húsnæðismála-
stjórnar, bauð gesti velkomna og
lét i ljósi ósk um gott samstarf
milli byggingarfulltrúa og starfs-
fólks stofnunarinnar. Unnar Stef-
ánsson, ráðstefnustjóri, þakkaði af
hálfu ráðstefnugesta.
Nýskipan fasteigna'
skráningar
í sömu skoðunarferð var staldr-
að við i húsakynnum Fasteigna-
mats ríkisins að Lindargötu 46 og
húsakynnin skoðuð undir leiðsögn
starfsfólks stofnunarinnar. Að
morgni siðari ráðstefnudagsin;
flutti Guttormur Sigurbjörnsson,
forstöðumaður Fasteignamatsins,
framsöguerindi, þar sem hann
lýsti nýrri löggjöf um skráningu og
mat fasteigna, sem samþykkt hafði
verið á Alþingi nokkrum dögum
áður. Dreifði hann á fundinum
sýnishornum af þeim eyðublöðum,
sem stofnunin notar við mat
mannvirkja í Reykjavík. Guttorm-
ur svaraði síðan fyrirspurnum,
sem fram voru bornar varðandi
breytingar, sem nú verða á verk-
sviði byggingarfulltrúa samkvæmt
hinum nýju lögum.
Rannsóknarstofnun
byggingariðnaðarins
Haraldur Ásgeirsson, forstöðu-
maður Rannsóknarstofnunar bygg-
ingariðnaðarins, flutti erindi um
verkefni stofnunarinnar og þá
þjónustu, sem völ er á hjá henni,
einkum í sambandi við byggingar-
efni, bæði til steinsteypugerðar og
eins þau margvíslegu nýju efni,
sem húsbyggjendum stendur til
boða frá innlendum og erlendum
framleiðendum.
í lok ráðstefnunnar var efnt til
ferðar í Keldnaholt, þar sem
rannsóknarstofur stofnunarinnar
voru skoðaðar. Gengu þátttakend-
ur í smáhópum um húsakynnin
undir leiðsögn starfsfólks og hlutu
greinargóðar upplýsingar um hvað-
eina, sem á góma bar.
Stöðlun í byggingariðnaði
Loks voru á síðari degi ráðstefn-
unnar flutt tvö erindi um staðla:
Hörður Jónsson, verkfræðingur
hjá Iðnþróunarstofnun íslands,
flutti erindi um stöðlun í bygging-
ariðnaði, þar sem hann gerði grein
fyrir hinum ýmsu stöðlum, sem
Þátttakendur í skoðunarferð í Rannsóknarstofnun byggingarlðnaðarins á Keldnaholti.
SVEITARSTJÖRNARMÁL