Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 36

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 36
Áætlanagerð, tæknilegur undirbúningur og um- sjón vegna leiguíbúðanna reyndist umfangsmeira verk en ráð var fyrir gert i upphafi. Þá tók tæknideild upp meiri háttar samstarf við Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins og Iðnþróunarstofnun vegna ýmissa rannsóknarverkefna, svo sem stöðlun í verk- lýsingu og útboðsgerð og sundurliðun byggingar- kostnaðar. Verið er að gera könnun á framleiðslu byggingarhluta úr gosefnum og þá sérstaklega úr perlusteini. Hefur tæknideildin áhuga á að gera til- raunir með perlustein í milliveggjaplötur og ti! hljóðeinangrunar gólfa. Þá hefur verið unnið að út- tekt á gerð og framleiðslu einingahúsa úr timbri. Var slíkt hús hannað í tilraunaskyni til framleiðslu úr smáum einingum fyrir verkstæði úti á landi með einfaldan vélakost. Voru 4 hús byggð á síðasta ári eftir þessum teikningum sem leiguíbúðir fyrir Þör- ungaverksmiðjuna að Reykhólum. Þá tók tæknideildin fjölbýlishúsagerðina til at- hugunar með tilliti til hagkvæmrar uppbyggingar og fjölbreytilegrar notkunar. Var slíkt hús hannað á síðasta ári, sem henta mundi verksmiðjuframleiðslu ýmissa byggingarhluta. Þá hefur á vegum stofnunarinnar verið unnið að gerð svokallaðs „húsamatslykils“, en það er mats- kerfi, sem gera á unnt að meta tæknileg gæði íbúðarhúsa, þannig að hægt verði í framtíðinni að gera mun ákveðnari kröfur til tæknilegrar útfærslu til hagræðis fyrir hönnuði, byggingaryfirvöld og lánastofnanir. Á tæknideild er nú unnið að því að safna upplýs- ingum um byggingarkostnað og byggja upp nokkurs konar verðbanka, þar sem alltaf verða fyrir hendi sundurliðaðar upplýsingar um byggingarkostnað húsa og húshluta. Stefnt er að því, að niðurstöður kostnaðar vegna byggingar leiguíbúða og verkamannabústaða skili sér og verði skrásettar, þannig að úr þeim fáist gott safn heimilda um einingaverð. Ætti það að auð- velda gerð framkvæmdaáætlana og stuðla að skyn- samlegri nýtingu byggingarfjár. Jafnframt komi slík vitneskja almennum húsbyggjendum að notum. Verða slíkar kostnaðarupplýsingar veittar hverjum þeim, sem hyggst ráðast í byggingu íbúðarhús- næðis. Þá er í ráði að láta staðlaða verklýsingu fylgja 282 hverri hústeikningu sem handbók, til glöggvunar SVEITARSTJÖRNARMÁL fyrir húsbyggjendur vegna þýðingarmikilla frá- gangsatriða. Virkara eftirlit með húsbyggingum Það er skoðun okkar, að ein leið til að lækka byggingarkostnað sé að koma á skipulögðu og virk- ara eftirliti með byggingarframkvæmdum en oft hefur verið til þessa. Vel undirbúin framkvæmd með fyrirframgerðri áætlun skilar ekki tilskildum ár- angri, nema áætluninni sé fylgt eftir við fram- kvæmdina með virku og skipulegu eftirliti, þar sem eftirlitshlutverkið er nægilega vel skilgreint. En á þessu vill oft verða nokkur misbrestur. Ég tel, að skilgreina þurfi mun betur en gert er, hverjar séu almennt starfsskyldur daglegs eftirlitsmanns með byggingarframkvæmdum. Er hér átt við aðila, sem starfa við byggingareftirlit umfram byggingarfull- trúa. Þetta hugtak, byggingareftirlit, virðist vera túlk- að á ýmsa vegu eftir tegund framkvæmda. Við vega- og virkjunarframkvæmdir virðist eftirlitshlutverkið hafa fengið nokkuð fastmótaða skilgreiningu. í hús- byggingariðnaðinum virðist ekki vera til neitt staðl- að form fyrir skilgreiningu á starfsskyldum daglegs eftirlitsmanns með byggingum íbúðarhúsa. Við teljum hins vegar fulla þörf á slíkri almennri skilgreiningu og höfum hug á að koma á framfæri tillögum um slíkt í tengslum við félagslegar íbúða- byggingar, sem fjármagnaðar eru á vegum Hús- næðismálastofnunar ríkisins. Slíkur grundvöllur hlýtur að auka forsendur fyrir því, að byggingar- yfirvöld geti gengt virkari eftirlitshlutverki og veitt meira aðhald en ella. i

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.