Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Qupperneq 6

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Qupperneq 6
Séð yfir byggðina í Njarðvíkurkaupstað Eins og áður segir, var Njarðvíkurhreppur eldri stofnaður árið 1889 og stóð sem slíkur til ársins 1908. Það ár var verzlunarlóð Keflavíkur stækkuð, og jafnframt er Keflavík sameinuð Njarðvíkurhreppi, sem breytti við þessa viðbót um nafn og nefndist Keflavíkurhreppur. Nafni Rosmhvalaneshrepps, sem Keflavík tilheyrði þá, var jafnframt breytt og hann nefndur Gerðahreppur. Næsta breyting á sér stað árið 1942, en þá er Keflavíkurhreppi skipt í tvö sveitarfélög, Kefla- víkurhrepp og Njarðvíkurhrepp, vegna eindreginna óska íbúa í Njarðvíkum. Skiptingin var heimiluð með bréfi atvinnu- og samgöngumálaráðuneytisins 22. janúar árið 1942. í marzmánuði árið 1942 fara síðan fram fyrstu kosningar til hreppsnefndar. Var kosið óhlut- bundinni kosningu. Fyrstu hreppsnefnd skipuðu Karvel Ögmundsson, Magnús Ólafsson, Sigurður Guðmundsson, Sigur- geir Guðmundsson og Bjarni Einarsson. HREPPSNEFND NJARÐVÍKUR 1942 Oddviti mó' 252 SVEITARSTJÓRNARMÁL Fyrsta hreppsnefnd Njarðvíkurhrepps.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.