Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Blaðsíða 7
Bæjarskrifstofurnar og áhaldahús kaupstaðarins eru á Fitjum í húsi, sem keypt var undir starfsemi sveitarfélagsins 1968.
Af þessum fyrstu hreppsnefndarmönnum eru enn
á lífi þeir Karvel Ögmundsson, útgerðarmaður, og
Bjarni Einarsson, framkvæmdastjóri Skipasmíða-
stöðvar Njarðvíkur.
Karvel Ögmundsson var kosinn oddviti hinnar
nýju hreppsnefndar, og gegndi hann síðan oddvita-
starfinu í 20 ár, eða allt til ársins 1962, að hann gaf
ekki lengur kost á sér í hreppsnefnd. Karvel hafði
áður átt sæti í hreppsnefnd Keflavíkurhrepps.
Hafizt handa
Þegar Njarðvíkingar tóku sjálfir við stjórn
sveitarfélagsins árið 1942, vantaði flest, sem þegar á
þeim árum var talið nauðsynlegt.
Vatn var tekið úr brunnum víðs vegar í hreppn-
um, rafmagn var ekki fyrir hendi, enginn skóli o. s.
frv.
Bæjarstjórn Njarðvíkurkaupstaðar ásamt bæjarstjóra. Talið frá vinstri: Áki Gránz, Ingólfur Aðalsteinsson, Arndís Tómas-
dóttir, ingvar Jóhannsson, forseti bæjarstjórnar, Albert K. Sanders, bæjarstjóri, Hilmar Þórarinsson, Ólafur í. Hannesson
og Oddbergur Eiríksson.
253
SVEITARSTJÖRNARMÁL