Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Page 12
Götumynd frá Njarðvík. Ljósmyndina tók Áki Gránz.
íþróttasvæði
Ungmennafélagið byggði á sínum tíma góðan
grasvöll. Naut það til þess aðstoðar sveitarfélagsins. í
marzmánuði þetta ár afhenti ungmennafélagið
Njarðvíkurkaupstað iþróttasvæðin til eignar, og
hefur bærinn því allan veg og vanda af þeim. Á s. 1.
sumri var tekinn í notkun nýr malarvöllur. Æska
Njarðvíkur á því kost á góðri íþróttaaðstöðu, þar sem
nú eru í bænum bæði grasvöllur og malarvöllur,
ásamt malbikuðum handknattleiksvelli.
Ráðhús Njarövíkur
Árið 1968 keypti Njarðvíkurhreppur húseign
Vélsmiðju Njarðvíkur á Fitjum. Þar eru nú til húsa
skrifstofur bæjarins, bæjarverkfræðings og rafveitu,
áhaldahús bæjarins og rafveitunnar, sem sagt „allt á
sama stað“.
Aðstaða er þarna mjög góð, og voru þetta vissu-
lega kostakaup, því áður hafði starfsemin verið í
mjög miklu húsnæðishraki.
258
f vaxandi bæjarfélagi er jafnan mikið
um nýlagnir hvers konar. Á myndinnl
til vinstrl, sem Áki Gránz tók, er unnið
vlð hitaveitu, en hinni vatnsveitu.
SVEITARSTJÓRNARMÁL