Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Page 14
Skuttogarar í slipp í Njarðvík. Ljósmyndirnar með greinlnni tók Ljósmyndastofa Suðurnesja, ef ekki er annað fram tekið.
að Grindavík og Sandgerði hafa sitt eigið slökkvilið,
en samvinna er á milli.
Dvalarheimili aldraðra tók til starfa í Garðinum í
haust. Að því standa öll sveitarfélögin utan Grinda-
vík.
Heilbrigðisfulltrúinn er einn fyrir Suðurnes og
hefur aðsetur í Njarðvík.
Auk þess er samvinna um ýmis önnur smærri mál,
til hagsbóta fyrir sveitarfélögin.
Samstarfsvettvangur sveitarfélaganna er Sam-
starfsnefnd sveitarfélága á Suðurnesjum. I henni
eiga sæti framkvæmdastjórar sveitarfélaganna á
Suðurnesjum. Nefndin kemur saman til funda
mjög reglulega. Hún hefur nú starfað í 5 ár og á
margan hátt sannað ágæti sitt.
Atvinnulíf
Athafna- og atvinnulíf er með miklum blóma í
Njarðvík. Þar eru nú 16 fiskverkunarstöðvar, þar af
þrjú frystihús, skipasmíðastöð, þrjár vélsmiðjur,
nokkur þungavinnuvélafyrirtæki, gluggaverk-
smiðja, steypustöð, plastgerð, nokkur trésmíðaverk-
stæði auk annarra smærri iðnfyrirtækja. Afkoma
fólks hefur á undanförnum árum verið með ágætum
og atvinnuleysi óþekkt.
Líðandi stund
Verkefni líðandi stundar eru margvísleg, eins og í
öðrum sveitarfélögum. Byggðaþróun er jöfn, og eru
nú í byggingu um 110 íbúðir, 'misjafnlega langt
komnar, auk þess um 15 hús fyrir ýmiss konar starf-
semi
Unnið er að nýju skipulagi fyrir Innri-Njarðvík,
vatnsveituframkvæmdum er að ljúka, nýlokið er við
grunnskóla og bókasafn, unnið er að undirbúningi
gatna undir slitlag, og ráðgerðar eru miklar fram-
kvæmdir í þeim efnum sumarið 1977 o. fl. o. fl.
Landshöfnin hefur undanfarin tvö ár verið stór-
bætt og umferð um hana hefur aukizt til muna.
Þetta og margt fleira stuðlar sameiginlega að því, að
Njarðvíkingar líta björtum augum til framtíðarinn-
ar. Hagur sveitarfélagsins er góður. Framkvæmt
hefur verið á hverjum tíma eftir því, sem efni og
aðstæður sveitarfélagsins hafa leyft. Syrt hefur í
álinn um sinn vegna erfiðleika sjávarútvegs á
svæðinu, en öll él birtir upp um síðir.
Suðurnesjamenn hafa sótt fast sjóinn á undan-
förnum árum og gera enn. Bjartsýni og fram-
kvæmdavilji hefur einkennt fólkið og fleytt því yfir
erfið tímabil, og svo mun einnig verða nú.
260
SVEITARSTJÖRNARMÁL