Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Side 15
GÍSLI JÓNSSON,
menntaskólakennari:
HÚN HAFÐI
GOTT HJARTA
Þáttur af fyrstu konu, sem kaus á íslandi.
í þessari grein segir frá konu þeirri, er með
vissu kaus fyrst til sveitarstjórnar á íslandi, Vil-
helmínu Lever eða maddömu Vilhelmínu. Skort-
ir þó mjög á, að saga hennar sé fullrannsökuð.
Heimildir mínar að efni greinarinnar eru ýmsar
prestsþjónustubækur, Saga Akureyrar eftir Kle-
menz Jónsson, Ævisaga Þorsteins Daníelssonar á
Skipalóni eftir Kristmund Bjarnason, Minningar
Kristins Kristinssonar, gamals Eyfirðings, ævi-
saga Gísla Konráðssonar, ýmis skjalagögn í Hér-
aðsskjalasafninu á Akureyri og akureyrsk blöð.
Um ýmislegt í þessu sambandi hafa frætt mig
Árni Jónsson, fyrrverandi Amtsbókavörður, Ein-
ar Bragi Sigurðsson, rithöfundur og Haraldur
Sigurðsson, bankaritari.
Til upphafs þessarar sögu nefni ég bræður tvo
danska, og báru þeir ættarnafnið Lever. Hét hinn
eldri Anders (Andreas, Andrés) Friðrik, líklega
fæddur 1778, og hinn yngri Hans Vilhelm, fædd-
ur 1780. Ekki er dæmalaust, að nöfnum bræðr-
anna sé blandað saman, svo að erfitt verður sund-
ur að greina. 'Segir nú fyrr af hinum eldri, föð-
urbróður konu þeirrar, sem hér verður fjallað
um.
Fyrst veit ég það af Anders Lever, að hann kom
unglingur til Akureyrar og gerðist búðardrengur
hjá Ólafi Gíslasyni Waage, er þar rak verzlun
skamma hríð, eða 1796-’97, að því er Klemenz
Jónsson telur. Kemur þetta að vísu ekki saman
við það, sem segir í kirkjubók, að þá væri Anders
Friðrik 15 ára, en aldur hans má hafa verið rang-
Iega talinn, sem ekki mun dæmafátt í prestsþjón-
ustubókum.
Aldamótaárið 1800 er Anders Friðrik orðinn
assistent hjá Einari kaupmanni Hjaltesteð, þá tal-
inn 21 árs. En sama ár flyzt hann til Siglufjarðar
og gerist þar verzlunarstjóri. Var hann þangað
sendur af Kyhn, móðurbróður sínum, er þá átti
verzlun á Siglufirði. Anders Friðrik er þar talinn
í manntalinu 1801, ógiftur, 23 ára, og hjá honum
íslenzk þjónustustúlka, Guðrún Jónsdóttir, 24 ára.
En liilu síðar giftist hann Friðriku Kristínu Ras-
musdóttur Lynge, en hún var fimm árum yngri
en hann. Rasmus faðir hennar var bróðir Friðriks
Lynge, sem síðastur var einokunarkaupmaður á
Akureyri og frumbyggi staðarins. Hann reisti
fyrsta íbúðarhúsið 1777.
Hinn 9. ágúst 1800 var Anders Lever guðfaðir
sveinsins Jörgens Kröyers, en foreldrar hans voru
Jóhann Kröyer, faðir þeirrar ættar á íslandi,
hreppstjóri og verzlunarmaður í Höfn á Siglu-
firði, og kona hans íslenzk, Rakel Halldórsdóttir,
sveitarstjórnarmál