Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Qupperneq 18

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Qupperneq 18
viljað kasta hinu stirðlega íslenzka Þuríðarnafni og kallast þjálla heiti upp á dönsku. Hvað um. Seinna er hún jafnan skrifuð Turid í kirkjubók- unum, og er svo farið bil beggja, íslenzku og dönsku. Hans Vilhelm er nú verzlunarstjóri á Akur- eyri um hríð. Hann er sagður hafa verið vel gefinn, og skjöl bera þess merki, að hann hefur verið listaskrifari. Þá er hann sagður hafa talað og ritað ensku, sem þá var mjög fátítt hérlendis, en var stríðinn og deilugjarn, svo sem heimildir votta. Einkum virðist honum hafa verið uppsigað við Gunnlaug Briem sýslumann. Árið 1808 hóf hann kartöflurækt í norðurbarmi Búðargils og er upp- hafsmaður þeirrar ræktunar á Akureyri. Heppn- 264 Búðargil á Akureyri, þar sem Hans Vilhelm Lever hóf fyrstur manna kartöflurækt árið 1808 með góðum árangri. Myndin er úr íslandsför W.G. Collingwood árið 1897 og fengin úr bókinni „Á söguslóðum", sem Bókaútgáfa Mennlngarsjóðs gaf út árið 1969. aðist honum sú iðja svo vel, að hann fékk brátt margfalda uppskeru úr görðum sínum og hagnað- ist drjúgum, því að kartöflur voru þá í háu verði. Kenndi hann Akureyrarbúum kartöflurækt, sem þeir hafa æ síðan mikið stundað. Eru Levers- garðar í Búðargili enn í rækt og hinn eini sýni- legi minnisvarði um hann á staðnum enn þann dag í dag. En bók er til eftir hann um þetta efni: Útvísan til jarðeplaræktanar fyrir almúga- menn á íslandi fiá Hans Vilhelm Lever höndlun- arfaktóri. Var bókin prentuð í Leirárgörðum á kostnað höfundar árið 1810 með einkunnarorð- unum: Aldrei er góð vísa of oft kveðin, á titil- siðu. Þau Þuríður, eða maddama Turid, hafa verið vel virt og voru hvað eftir annað guðfeðgin, er böxn heldi'a fólksins voru borin til skírnar. Svo var t. d. árin 1809 og 1810, m. a. hjá kaptein Scheel, er dvaldist þá á Akureyri við landmæling- ar ásamt öðrum dönskum kapteini. En eftir 1810 getur Þuríðar ekki í bókum Hrafnagilshrepps. Hefur mér dottið í hug, að hún hafi andazt er- lendis. Eftirtektarvert er, að í vönduðu fólkstali á Akuiæyri árið 1816 fyrirfinnst ekkert af því Leversfólki. Gæti ekki verið, að Hans Vilhelm væri erlendis með Vilhelmínu dóttur sína eftir lát Þuríðar? Ekki þykir mér það ósennilegt, en hvað sem því líður, er hann kominn til Akuieyrar þeg- ar í upphafi næsta árs, 1817, og er þá með hon- um síðari kona hans, Karín Kristín. Voru þau guðfeðgin barns Gísla Erlendssonar assistents. Karín Kristín var 10 árum yngri en maður henn- ar, fædd 1790. Um uppruna hennar veit ég ekki. Þetta ár var nokkuð tíðindasamt hjá því Levers- fólki. Dóttirin Vilhelmína var fei'md í Hrafnagils- kirkju, en heimilisfaðirinn kynntist ungri og bráðlaglegri stúlku, Guðrúnu Jónsdóttur fiá Moldhaugum, og gerði henni barn. Hún var þá 15 eða 16 ára. Var nú í vanda komið, en Lever bjargaði sér þannig, að hann fékk efnaðan miðaldra borgara á Akureyri, Sigurð Benedikts- son að nafni, til að giftast Guðrúnu og gangast við faðerninu. Er barnið talið skilgetið í kirkju- bókinni. Sigurður þessi hafði feirgið leyfi til að hafa veitingasölu á Akureyri, en notaði sér ekki, enda markaður enn lltill, og einmitt þennan SVEITARSTJÖRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.