Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Qupperneq 21
eftir heimkomuna, en fór ekki aftur í Krossanes
til móður sinnar.
Vilhelmina bjó í Syðra-Krossanesi til ársins
1849, en það ár tók hún á leigu sjálft höfuðból-
ið Möðruvelli í Hörgárdal og gerðist húsfreyja í
Friðriksgáfu. Um það segir Gisli Konráðsson í
ævisögu sinni, að Eyfirðingar hafi lítt boðið í
jarðir og ekkert í sjálft Möðruvallaklaustur. Hafi
þó Einar umboðsmaður Stefánsson á Reynistað
freistað þess þrisvar, „en varð að lyktum að byggja
það með leigum einum konu þeirri, er Mína
hét. Var það sú, bætir hann við, er skjóta vildi
ruslabyssu á Skagfirðinga í Norðurreið og bauð
það amtmanni, en ei vildi hann því sæta.“ Hefur
söguhetja okkar gerzt hér heldur herská. Ekki
varð dvöl hennar löng á amtmannssetrinu. í far-
dögum árið eftir rýmir hún fyrir hinum nýja
amtmanni, Pétri Havstein, og flyzt aftur í Krossa-
nes. Hafði hún með sér kornunga fósturdóttur,
Vilhelmínu Pálsdóttur að nafni, fædda 21. marz
1847. Foreldrar hennar voru Páll Erlendsson og
Margrét Þorvaldsdóttir, en þau höfðu flutzt frá
Akureyri og hafið búskap í Glæsibæ sama árið
og Vilhelmína fór í Krossanes. En litla stúlkan,
sem líklega hefur verið látin heita í höfuðið á
Vilhelmínu Lever, missti móður sína nýfædd. Býr
Vilhelmína í Krossanesi til 1852, en flyzt þá til
Akureyrar á ný og virðist aftur hefja þar verzlun
og veitingasölu.
Árið 1856, hinn 6. júní, voru í Hrafnagilskirkju
gefin saman Hans V. Lever „hjá móður sinni á
Akureyri", eins og prestur segir, 23 ára, giftur
fyrsta sinn, og Sigurbjörg Hallgrímsdóttir, vinnu-
kona á Akureyri, 18 ára, einnig gift fyrsta sinn.
Sigurbjörg var fædd 6. október 1837, bóndadótt-
ir frá kotbýlinu Heiðarhúsum á Þelamörk. Hún
hafði verið vinnukona hjá Hallgrími Kristjáns-
syni gullsmið og þannig í nábýli við þau Levers-
mæðgin, sem betur kemur fram síðar. Svaramenn
Sigurbjargar og Hans Vilhelms voru faktor Ed-
vald Möller áðurnefndur og apótekari Oddur
Thorarensen.
Árið eftir er Vilhelmína í manntali kölluð
verzlunarborgarinna, og hjá henni eru ungu
Friðrlksgáfa á Möðruvöllum í Hörgárdal, amtmannssetrið á Norður- og Austurlandi. Árlð 1849 tók Vilhelmina Lever
höfuðbólið á leigu og gerðist þar húsfreyja, þótt ekki yrði vistin löng. Myndina gerði August Mayer árið 1836.
SVEITARSTJÓRNARMÁL