Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Side 22

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Side 22
hjónin, en Hans hefur enn ekki aðra stöðu en „sonur hennar". Þar er einnig Vilhelmína fóstra hennar og tvö vinnuhjú. 1 næsta manntali er Sigurbjörg ekki hjá þeim, en komin aftur 1859, þá nefnd maddama, en Hans eins og áður sonur móður sinnar. En nú tekur að halla undan fæti fyrir Vilhelmínu. Bregður hún á það ráð árið 1860 að flytjast vestur að Hraunum í Fljótum, og eru með henni Hans Vilhelm og Vilhelmína yngri. Hef ég enn enga skýringu fengið á þessum Guðnavink, enda varð dvöl hennar í Fljótunum örstutt. í árslok 1861 er hún talin í tómthúsi í húsi nr. 1. á Oddeyri, væntanlega Lundi, elzta húsi þar á eyrinni. Þar eru þá hjá henni Hans Vilhelm og Vilhelnrína, en Sigurbjörg „24 ára, skilin við mann, er burtvikin úr sókninni að Vopnafjarðarkaupstað.“ Næsta ár er mikið um að vera á Akureyri. Bærinn hafði hlotið kaupstaðarréttindi, og nú skal samkvæmt nýrri reglugerð kjósa hina fyrstu bæjarstjórn 31. marz 1863. Er kjörbókin enn til, og fyrsti kjósandinn, sem þar er bókaður, er Madame Vilhelmine, og valdi hún til bæjarfull- trúa Jón Finsen lækni, J.P. 'I'horarensen lyfsala, Pál Thorberg Johnsen kaupmann, Edvald E. Möller verzlunarstjóra og Jóhannes Halldórsson cand. theol. Er þetta hin mesta ráðgáta, því að þetta er 18 árum áður en konur á íslandi fengu takmarkaðan kosningarrétt til sveitarstjórna. Þá var og það skilyrði í Akureyrarreglugerðinni, að kjósendur skyldu hafa goldið a. m. k. 2 ríkisdali í bæjargjöld á ári, og má vera, að Vilhelmína hafi náð því marki, þó að hag hennar væri þá tekið að hnigna til muna. í skjölum bæjarins er bókað, að hún gyldi fardagaárið 1863-’64 einn ríkisdal og 56 skildinga, en í lausafjártíund 58 skildinga. Árið 1863 telur hún fram 4 liross, en engar aðrar skepnur og hefur kálgarð stóran, að flatarmáli 650 ferfaðma. Ekki virðist hagur henn- ar hafa farið batnandi eftir það, en þó er bókað, að hún kysi aftur til bæjarstjórnar 1866, en það er líka í síðasta skiptið, að hún kýs. Ekki leikur vafi á, að Vilhelmina Lever er fyrsta konan, sem „kýs“ á íslandi. Ekki er mér kunnugt um, hvort hún hefur verið tekin á kjör- 268 skrá án kæru, en þess skal getið til skýringar, að í hinum danska texta kaupstaðarreglugerðarinn- ar fyrir Akureyri var talað um „alle Mænd“ í greininni um kosningaréttinn, og þýðir það all- ir karlmenn í því sambandi. En í íslenzku þýð- ingunni varð þetta „allir nrenn“, og má vera, að Vilhelmína kæmist á kjörskrána í krafti þess, að vissulega væri hún maður. Alla vega hefur hún haft einurð til að leita ítrastaréttar síns og kannski ríflega það. Næstu árin býr Vilhelmína inni í Fjöru, og 11. febrúar 1867 deyr einkasonur hennar, Hans Vilhelm, „í skjóli móður sinnar á Akureyri," eins og það er orðað, tæpt'a 34 ára. Þá sýnist Vilhelm- ína vera komin í hús Dýrleifar Björnsdóttur, sem flutzt hafði til Akureyrar utan úr Tjarnarsókn í Svarfaðardal 1854, en fór til Ameríku 1873. í þessu húsi mun Vilhelmína hafa búið lengst af síðan, og J^að tnun sama húsið sem Kristinn Kristinsson kallar Mínubæinn í minningum sínum og segir, að kenndur væri við einhverja Vertshús-Mínu. Segir Kristinn, að bær þessi hafi verið lítið eitt norðar og nær brekkunni en Indriðahús, sem þá var kallað og enn stendur (Aðalstræti 66), en í Indriðahúsi var Vilhelmína einnig einhvern tíma. Enn segir Kristinn Kristinsson, að þegar faðir hans fluttist í bæinn, hafi hann keypt þetta hús, Aðalstræti 66 á Akureyri. Hús þetta reisti Bertil H. Borgen, sýslumaður, litlu fyrir 1840. Seinna gekk þetta hús um tíma undir nafninu Indriðahús, og átti Vilfielmína Lever þar heima skamman tíma, líklega á vegum bæjarins, er hag hennar var til muna farið að hnigna. Ljósm. Eðvarð Sigur- geirsson. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.