Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Page 23
sem að mestu hafi verið byggt úr torfi, en svo
rúmgott, að þar gátu búið fjórar fjölskyldur. Það
er þetta hús, sem Björn Jónsson talar um í dag-
bók sinni, en hann segir, að 3. maí 1868 hafi
Ólafur danski, sem var verzlunarmaður hjá Gud-
mann, haldið kómedíu hjá Mad. Vilhelmine.
Sóttu þangað margir, svo að húsfyllir varð.
Örskammt fram undan Mínubænum var lítið,
snoturt hús, hvítmálað, sem Einar Hallgrímsson,
sonur Hallgríms gullsmiðs, er áður getur, bjó í,
en Einar þessi giftist einmitt margnefndri fóstru
og nöfnu Vilhelmínu. Var giftingarathöfnin í
Akureyrarkirkju 18. sept. 1873 og hann þá verzl-
unarþjónn 27 ára, en hún 26, bæði gift fyrsta sinn.
Svaramenn þeirra voru verzlunarfulltrúarnir J.
E. Jensen og Bernhard August Steincke. Vann
hinn síðarnefndi sér fjölmargt til ágætis á Akur-
eyri. Hefur gömlu Vilhelmínu sjálfsagt verið mik-
il stoð að nábýlinu við nöfnu sína og tengdason
síðustu æviárin, því að hún gerðist að lokum
blind og karlæg. Furðulega seiglaðist hún þó,
því að fardagaárið 1870-’71 galt hún enn í bæj-
argjöld einn ríkisdal og 32 skildinga. Annars naut
hún stundum einhvers konar fyrirgreiðslu af hálfu
bæjarins. Meðal barna fóstru hennar var Hall-
grimur Einarsson myndasmiður.
Vilhelmína andaðist árið 1879, og bar dánar-
daginn upp á 19. júní, þann dag, er konur á
íslandi fengu löngu síðar kosningarétt og kjör-
gengi til Alþingis. Pétur Guðmundsson segir i
Annál 19. aldar, að hún hafi verið gáfuð kona,
starfssöm og veglynd, og um hana er skrifað í
Norðanfara 4. júlí: „19. f.m. andaðist hér í bæn-
um madama Vilhelmine borin Lever, á áttunda
ári yfir sjötugt: hún hafði lengi verið blind og
veik og legið árum saman í rúminu. Konaþessi var
einkar vel gáfuð og í mörgu tilliti fágæt afbragðs-
kona, og allt til þess, að hún varð blind og lagðist
í rúmið, framkvæmdar- og starfsöm, veglynd og
fús til hjálpar og velgjörðamóðir margra fátækra
og munaðarlausra, að svo miklu leyti sem efni
hennar framast leyfðu“.
Hitt blaðið, sem út kom þá á Akureyri, Norð-
lingur, segir svo: „Nýdáin er hér í bænum mad-
ama Vilhelmina Lever: hún var einhver hin
framkvæmdarsamasta og duglegasta kona sinn-
ar tíðar og hafði gott hjarta."
HEIÐURS-
BORGARI
SIGLUFJARÐAR-
KAUPSTAÐAR
Bæjarstjórn Siglufjarðar hefur
kjörið Ólaf Þ. Þorsteinsson, yfirlækni
á Sjúkrahúsi Siglufjarðar, heiðurs-
borgara kaupstaðarins. Var þetta
samþykkt með samhljóða atkvæðum
allra bæjarfulltrúa á bæjarstjórnar-
fundi hinn 29. október s. 1.
Ólafur varð sjötugur i ágúst-
mánuði s.l. og lætur nú af starfi, eftir
að hafa verið yfirlæknir við sjúkra-
húsið frá 1. janúar 1942 eða í hartnær
35 ár. Ólafur mun áfram starfa að
almennum lækningum á Siglufirði.
Auk læknisstarfa hefur Ólafur
einkum látið til sin taka byggingar-
mál nýja sjúkrahússins og var m.a.
formaður byggingarnefndar þess.
Eiginkona Ólafs er Kristine Þor-
steinsson frá Alversund í Noregi, og
hefur hún tekið virkan þátt í félags-
málum á Siglufirði með heilladrjúg-
um hætti.
Ólafur er þriðji heiðursborgari
Siglufjarðarkaupstaðar. Fyrsti
heiðursborgari kaupstaðarins var séra
Bjarni Þorsteinsson, sóknarprestur og
tónskáld og annar í röðinni Sigurður
Kristjánsson, sparisjóðsstjóri og
bæjarfulltrúi.
Ólafur Þ. Þorsteinsson.
SVEITARSTJÓRNARMÁL