Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Síða 24
VALDIMAR ÓSKARSSON, skrifstofustjóri:
ÁHRIF HÆKKUNAR Á FASTEIGNAMATI
Á FASTEIGNASKATT OG ÖNNUR GJÖLD
TIL SVEITARFÉLAGA, SEM VIÐ
FASTEIGNAMAT ERU MIÐUÐ
Með lögum nr. 94 um skráningu og mat fasteigna,
frá 20. maí 1976, er kveðið svo á, að matsverð fast-
eignar skuli vera gangverð umreiknað til stað-
greiðslu, miðað við verðlag í nóvember-mánuði ár
hvert, og skal það talið fasteignamatsverð frá og með
1. desember til jafnlengdar næsta ár, nema sérstakt
endurmat komi til.
Á grundvelli þessara lagaákvæða tekur nýtt fast-
eignamat gildi þann 1. desember 1976 og gildir til
30. nóvember 1977. Verður þetta nýja fasteignamat
því grundvöllur við álagningu fasteignaskatts og
ýmissa annarra fasteignagjalda, sem sveitarfélögin
innheimta á árinu 1977.
270
Valdimar
Óskarsson
Samkvæmt 26. gr. áðurgreindra laga skal
ákvörðun tekin í nóvember-mánuði ár hvert um
breytingu á öllu fasteignamati í landinu.
Gildandi fasteignamat er aðalmatið frá 1970, sem
byggðist á verðmætisviðmiðun um áramótin 1969
og 1970 og er því ljóst, að samkvæmt ákvæðum
hinna nýju laga, verður hér um stökkbreytingu að
ræða i matsupphæðum, þegar nýtt fasteignamat
tekur gildi þann 1. desember 1976.
Ef borin er saman vísitala byggingarkostnaðar frá
viðmiðunartíma aðalmatsins og byggingarvisitalan i
september 1976, lætur nærri, að um fimm- og hálf-
földun sé að ræða.
Markaðsrannsóknir, sem fram hafa farið á þessu
sviði, hafa leitt í ljós sízt minni hækkun, en að sjálf-
sögðu nokkuð breytilega.
í þeirri umfjöllun, sem hér fer á eftir, verður
gengið út frá sexföldun á gildandi fasteignamati. Er
það að sjálfsögðu áætluð stærð og notuð hér sem
meðaltalsviðmiðun, byggð á ofanrituðu, en á engan
hátt bindandi, þar sem verðþróun hefir að sjálfsögðu
verið allbreytileg milli byggðarlaga og byggðahverfa
á þeim sjö árum, sem liðin eru frá viðmiðunartíma
gildandi fasteignamats.
Viðmiðunarstofn fyrir álagningu fasteignaskatts
hefir á undanförnum árum verið ákveðinn þannig,
að fasteignamatið frá 1970 hefir verið hækkað í pró-
sentum með sérstökum bráðabirgðaákvæðum
hverju sinni. Fyrir árið 1976 var ákveðið að meta
margfeldið 2.73 til ákvörðunar á þessum gjaldstofni.
SVEITARSTJÓRNARMÁL