Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Side 26

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Side 26
272 1976 með stuðlinum 2.73 við ákvörðun leigunnar þá, og verður því hækkun á lóðarleigum í þeim tilfellum 120% milli áranna 1976—1977. En hafi fasteigna- matið verið notað óframreiknað við ákvörðun lóðarleigunnar á líðandi ári, sexfaldast lóðarleigan á árinu 1977. Það getur farið eftir ákvæðum lóðarleigu- samninga, ef í þeim er að finna svigrúm til hækkunar eða lækkunar, hvort sveitarstjórnir geta haft áhrif á þessa breytingu. Aðrar ákvarðanir um lóðarleigur eru ýmist bundnar um lengri eða skemmri tíma eða eru breytilegar frá ári til árs, eftir vissum reglum. Þessi mismunandi ákvæði og viðmiðunarreglur varðandi álagningu lóðarleigu skapa verulegt ósamræmi milli einstakra sveitarfélaga, þegar slíkar stórbreyt- ingar á viðmiðunarstofni sumra þeirra eiga sér stað. 3. Vatnsskattur Álagning vatnsskatts hjá þeim sveitarfélögum, sem hann innheimta, er bundin reglugerðar- og gjaldskrárákvæðum, sem viðkomandi sveitarstjórn hefir samið og staðfestar eru af félagsmálaráðu- neytinu: þar eru ákvæði um, á hvern hátt álagningu skattsins skuli hagað. Vísast hér til yfirlits, sem Samband íslenzkra sveitarfélaga hefir látið gera yfir gjaldskrár vatns- veitna, en þar kemur glöggt fram, hvernig álagningu vatnsskattsins er háttað hjá hinum einstöku sveitar- félögum. Nær undantekningarlaust er vatnsskattur reikn- aður í fyrstu umferð sem prósenta af fasteignamati. í flestum tilfellum er síðan beitt ýmsum ákvörðunum, þ. e. lágmörkum og hámörkum við endanlega ákvörðun skattsins. Takmarkanir þessar byggjast í mörgum tilfellum á ákveðnum krónutölum, miðað við rúmmeter i húsi og/eða fastri krónutölu varðandi lágmark vatns- skattsins fyrir hverja gjaldskylda eign eða gjald- einingu. Þá koma einnig til verðbreytingar og hækkunar- eða lækkunarheimildir í ákvæðum gjaldskránna. Heimildum þessum geta viðkomandi sveitarstjórnir beitt innan vissra marka. I ýmsum tilfellum er einnig tekið mið af vísitölu byggingar- kostnaðar við ákvörðun um hækkun milli ára, enda séu þær breytingar innan hækkunarheimilda gjald- skránna. Ljóst er, að sexföldun fasteignamatsins getur haft mikil áhrif til hækkunar á vatnsskattinum. En vegna þess, hve gjaldskrárákvæði eru mismunandi, er ekki unnt að tilgreina dæmi, sem spegla þessi áhrif fyrir heildina, og því verður hver sveitarstjórn að fjalla um áhrif breytingarinnar á grundvelli gildandi reglugerðar fyrir hvern stað. í því sambandi er rétt að hafa í huga: í fyrsta lagi, á hvern hátt eða hvort takmörkunarákvæði í reglu- gerðunum breytast i samsvarandi breytingu á gjaldstofninum, þ. e. fasteignamatinu. Og í öðru lagi, að hjá þeim sveitarfélögum, sem ekkert hámark hafa, verður vatnsskatturinn mjög hár, nema lækk- unarákvæðum sé beitt, ef fyrir hendi eru. 4. Holræsagjald Ekki innheimta öll þéttbýlissveitarfélög holræsa- gjöld. En álagning þessara gjalda er ákvörðuð með gjaldskrám á hliðstæðan hátt og vatnsskatturinn. Er því ekki ástæða til að fjalla frekar um þau, nema hvað hækkun fasteignamatsins hefir þar einnig veruleg áhrif og getur því breikkað bilið milli sveitarfélaga, varðandi gjaldtöku af hverri fasteign til samfélagsþarfa. Að öðru leyti vísast til þess, sem áður er greint varðandi álagningu vatnsskatts. Hér hefur verið leitazt við að sýna fram á í stórum dráttum, að nýtt fasteignamat kemur til með að hafa mikil áhrif á nokkra tekjustofna sveitarfélaganna og jafnframt er vakin athygli á að það getur einnig leitt til mikils mismunar milli hinna einstöku sveitar- félaga, og síðast en ekki sízt vekur það til umhugs- unar um, hvort gjaldtökur á þessum grundvelli, miðað við gildandi lög og reglugerðir, séu innan ákjósanlegra marka. SVEITARSTJÖRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.