Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Page 33
HARALDUR V. HARALDSSON, forstöðumaöur
Tæknideíldar Húsnæðismálastofnunar ríkisins:
STARFSEMI TÆKNIDEILDAR
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUNAR
RÍKISINS OG SAMSTARF
HENNAR VIÐ
BYGGINGARFULLTRÚA
Um árabil hefur Húsnæðismálastofnun ríkisins
starfrækt teiknistofu, sem hefur selt byggjendum,
aðallega úti á landsbyggðinni, staðlaðar teikningar
af húsum og íbúðum á lágu verði. Það var árið 1957,
sem Húsnæðismálastofnun hóf starfrækslu teikni-
stofu og réði 2 starfsmenn til þess að annast teikn-
ingagerð. Voru í fyrstu eingöngu unnar svokallaðar
húsateikningar, en teikningar af burðarvirkjum og
lögnum teknar nokkrum árum síðar inn á verkefna-
skrá.
Störf telknistofunnar voru hafin í þeim tilgangi að
veita mönnum, einkum úti á landi, aðgang að full-
komnum teikningum fyrir hóflegt verð. Áður var að
mestu byggt eftir ófullnægjandi teikningum hand-
verksmanna, oft á tíðum rissi á vasabókarblöðum,
jafnvel á skókassaloki. Það kom fljótlega í ljós, að
brýn þörf var fyrir slíka teikningaþjónustu, sérstak-
lega í hinum dreifðu byggðum landsins, og fékk
starfsemi teiknistofunnar fljótt góðar viðtökur. Er
óhætt að fullyrða, að hún hafi þar haft bætandi áhrif
með aðstoð og fyrir milligöngu byggingarfulltrúa.
Helztu verkefni teiknistofunnar
Lengst af voru 5—6 fastir starfsmenn á teikni-
stofunni, og önnuðust þeir einungis hönnun týpu-
húsateikninga, eins og áður segir. Ekki hafði teikni-
stofan framan af neitt byggingareftirlit eða leiðbein-
ingastarf með höndum úti um byggðir landsins,
enda engin tök á slíku vegna mannaskorts. Var í
þeim efnum treyst á úttektir byggingarfulltrúa og
leitað samvinnu við þá um frekara eftirlit og fyrir-
greiðslu, eftir því sem tök voru á, enda höfðu þeir
jafnan hjá sér sýnishorn af húsateikningum teikni-
stofunnar.
Árið 1968 er tekin upp sú nýbreytni að fara í
eftirlits- og leiðbeiningaferðir um landið á sumrum.
Hefur þó nokkur árangur verið af þessum ferðum,
þrátt fyrir stutta viðkomu á hverjum stað. Hefur
jafnan verið reynt að skipuleggja þessar ferðir í
samráði við byggingarfulltrúa hinna ýmsu staða.
Verður þessum ferðum haldið áfram og reynt að
skipuleggja þær enn betur m. a. með því að auka
almenna leiðbeiningaþjónustu við húsbyggjendur
og verja meiri tíma á hverjum stað til funda með
þeim.
Jafnframt því að starfrækja teiknistofu hafði
stofnuninni verið falið samkvæmt lögum að vinna
að umfangsmiklum umbótum í húsnæðis- og bygg-
ingarmálum, vinna að stöðlun í húsagerð, kynna
nýjar byggingaraðferðir til lækkunar kostnaðar,
framkvæma húsnæðisrannsóknir og annast fræðslu-
og leiðbeiningastarfsemi um húsnæðis- og bygg-
ingarmál svo og að starfa með öðrum stofnunum að
þróun byggingarmála. Ekki var unnt að sinna
þessum mikilvægu verkefnum sem skyldi, þar sem
störf starfsmanna voru nær einungis bundin við
hönnunarvinnu og útfærslu teikninga. Með endur-
skoðun á lögum um Húsnæðismálastofnun ríkisins 279
SVEITARSTJÓRNARMÁL