Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Qupperneq 41
GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON, kennari:
ÞÁTTUR SKÓLA
OG SVEITARFÉLAGA
í UMFERÐARFRÆÐSLU
Það sem af er þessari öld, hafa
lifnaðarhættir manna breytzt meira
en samtals á mörgum öldum áður.
Þetta á ekki hvað sízt við um öra
þróun í samgöngutækni og fjölgun
hinna ýmsu tegunda samgöngutækja.
Fjölgun ökutækja hefur verið mjög
mikil á síðasta áratug, en fyrir tæp-
lega 9 árum (26.5. ’68), þegar skipt
var frá vinstri yfir í hægri umferð,
var bifreiðaeign landsmanna aðeins
43.000. Bifreiðaflotinn er nú rúmlega
70.000 bifreiðar af tæplega 200
gerðum. Þá má nefna önnur ökutæki
eins og bifhjól, vélhjól, reiðhjól,
dráttarvélar og beltabifhjól (vél-
sleða).
Af þessu má sjá, að þær kröfur, sem
gera verður til ýmissa þátta um-
ferðarinnar, eru vaxandi. Helztu
þættir, sem til greina koma, þegar
rætt er um umferðaröryggi, mætti
nefna: ökutækið, veginn, manninn og
umferðarlögin. Af öllum tjónum og
slysum í umferðinni er talið, að 80—
90% sé beint eða óbeint ökumann-
inum að kenna. Umferðin í dag gerir
meiri kröfur tii likamlegrar og and-
legrar hæfni vegfarenda en margir
hverjir fá risið undir. En hvað er til
úrbóta?
Umferðarfræðsla
Þrátt fyrir góð ökutæki og bættar
samgöngur, eru þetta þætlir, sem eru
háðir sífelldum breytingum á ytri að-
stæðum, og þegar þeir bresta, reynir
fyrr eða siðar á vegfarandann sjálfan.
Góð þekking, bæði á sjálfum sér og
umferðinni, er aflgjafi Jteirrar var-
úðar, sem öllum vegfarendum kemur
að gagni.
Umferðarfræðslu skiptum við í
fimm stig:
1. Forskólafræðsla, 3ja—6 ára.
2. Umferðarfræðsla í skólum, 6—
15 ára.
3. Almenn umferðarfræðsla, 16—
25 ára.
4. Umferðarfræðsla fyrir aldraða,
65 ára og eldri.
5. Umferðaríræðsla fyrir sérhópa,
t. d. meiraprófsnámskeið.
Á forskólastiginu hefur Umferðar-
ráð starfrækt umferðarskólann Ungir
Vegfarendur allt frá árinu 1968. öll
bæjarfélög og mörg sveitarfélög
landsins eiga aðild að skólanum og
má fullyrða, að starfsemi skólans hafi
átt sinn þátt í fækkun umferðarslysa á
börnum. Skólinn starfar i formi
bréfaskóla, þar sem börnin fá send
verkefni, sem þau vinna með aðstoð
foreldra. Að sjálfsögðu markast ár-
angur að töluverðu eftir framlagi for-
eldra, en á þessu tímabili, þ. e. frá
3ja—6 ára, kemur í ljós, að börn eru
fljótari að tileinka sér einföldustu
reglur en áður var almennt álitið. Á
mörgum barnaheimilum er um-
ferðarfræðslu sinnt og notuð m. a.
verkefnamappa Umferðarráðs „Um-
ferðarbókin mín“.
Umferðarfræðslu í skólum er skipt í
*.i« raBHBaag ufiianaranaar i i1I!ííiíííTí!1Lj5ííí!L2J a
Verðlaunamynd úr telknlmyndasamkeppnl 9 ára skólabarna í aprílmánuði 1976.
Myndlna gerði Guðný Hafdís Hlll í Sandgerðl.
SVFJTARSTJÖRNARMÁL