Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Side 43
RÁÐINN SVEITARSTJÓRI
í ÞÓRSHAFNARHREPPI
Þegar þeir sveitarstjórar, sem
hér eru kynntir, eru taldir með, eru
ráðnir framkvæmdastjórar sveit-
arfélaga á Islandi 53 að tölu. Bæj-
arstjórar, þar með talinn borgar-
stjórinn í Reykjavík, eru 21, en
sveitarstjórar 32. Upphaflega var
ráðgert, að sveitarstjórar væru
aðeins ráðnir í hreppum með 500
íbúa eða fleiri. Nú eru átta ráðnir í
hreppum, þar sem íbúar eru færri.
Sú fjölgun sveitarstjóra, sem orð-
ið hefur á síðari árum, sýnir
óneitanlega vaxandi umsvif sveit-
arstjórnanna.
BJARNI AÐALGEIRSSON hefur
veriö ráðinn sveitarstjóri í Þórs-
hafnarhreppi frá 1. júli s. 1. Er þetta í
fyrsta sinn, sem ráðinn er sveitarstjóri
í hreppnum.
Bjarni er fæddur á Húsavík 25.
nóvember 1943. Foreldrar hans eru
Bergþóra Bjarnadóttir frá Norðfirði
og Aðalgeir Sigurgeirsson, bifreiðar-
stjóri á Húsavík. Bjarni lauk prófi frá
Samvinnuskólanum í Bifröst árið
1964 og starfaði síðan á skrifstofu hjá
Kaupfélagi Þingeyinga á Húsavík til
ársins 1969. Réðist þá sem kaup-
félagsstjóri að Kaupfélagi Langnes-
Bjarni Aðalgeirsson, sveitarstjóri.
inga á Þórshöfn og gegndi því starfi
til ársins 1973, er hann setti á stofn
bókhaldsskrifstofu á Þórshöfn. Bjarni
var kosinn í hreppsnefnd Þórshafnar-
hrepps árið 1970 og situr enn í
hreppsnefndinni.
Kvæntur er Bjarni Þórhöllu
Sigurðardóttur frá Þórshöfn og eiga
þau þrjá drengi.
I Þórshafnarhreppi eru um 450
íbúar.
SVEITARSTJÓRI RÁÐINN
í LAXÁRDALSHREPPI
Hreppsnefnd Laxárdalshrepps í
Dalasýslu hefur ráðið sér sveitar-
stjóra. Er það í fyrsta skipti sem
sveitarstjóri starfar í hreppnum. I
Laxárdalshreppi eru 388 íbúar, en í
Búðardal 256. Til starfans er ráðinn
einn hreppsnefndarmannanna,
Marteinn Valdimarsson, sem verið
hefur skrifstofumaður hjá Kaupfélagi
Hvammsfjarðar í Búðardal.
Marteinn Valdimarsson er fæddur
í Reykjavik 29. marz árið 1946.
Foreldrar Ebba Þorgeirsdóttir ðg
Valdimar Jónsson, veggfóðrunar-
meistari. Frá þriggja ára aldri ólst
hann upp á bænum Flóðatanga í
Stafholtstungnahreppi. Lauk prófi
frá Reykholtsskóla vorið 1963 og frá
Samvinnuskólanum i Bifröst á árinu
1967. Fluttist þá til starfa hjá Kaup-
félagi Hvammsfjarðar í Búðardal og
hefur starfað þar á skrifstofu þangað
til nú, að hann tekur við starfi
sveitarstjóra. Marteinn var kosinn í
hreppsnefndina árið 1974.
Kona Marteins er María Eyþórs-
dóttir úr Borgarnesi og eiga þau tvær
dætur.
Marteinn Valdimarsson, sveitarstjóri.
289
SVEITARSTJÓRNARMÁL