Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Qupperneq 15

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Qupperneq 15
ERLING GARÐAR JÓNASSON, rafveitustjóri Austurlands: RAFORKUMÁLIN AF SJÓNARHÓLI AUSTFIRÐINGA Raforkumálin eða orkumálin, eins og nú er farið að kalla þennan málaflokk, eru án efa sá mála- flokkur, sem hvað mest samstaða er um á Austur- landi, hvort sem um er að ræða þingmenn kjör- dæmisins eða sveitarstjórnarmenn. Samstaðan mótast af reynslu þessara aðila. Reynslu, sem fengin er frá liðnum erfiðleikum, annað hvort tilbúnum og/eða óviðráðanlegum, sem þurft hefur að yfirstíga. Umræðan um þessi mál og erfiðleikana hefur verið löng og ströng, enda ýmsir orðnir þreyttir af. En það er víðar en hér, sem menn ræða þessi mál. Markmið í orkubúskap Austurlands Saga raforkumála landsmanna hefst með því, að bjartsýnismaðurinn Reykdal í Hafnarfirði lét bæjarlækinn knýja vélar Dvergs h/f og lýsa upp vinnusali fyrirtækisins. Nágrannar Dvergs fengu brátt að njóta raf- magnsins til ljósa, en þar með var fyrsta rafveita landsins til orðin. Sagan hélt áfram; menn virkjuðu bæjarlækina. Austfirðingar urðu þar næstir á eftir Reykdal ásamt Siglfirðingum. Brátt fór svo, að afl og orka bæjarlækjanna var ónóg, og víðast varð að grípa til eldsneytisvéla. Nýsköpun atvinnuveganna hófst. Til að grund- völlur orkuþarfar atvinnutækjanna væri tryggður, þótti nauðsynlegt, að ríkið — þjóðin öll — tæki þátt í rafvæðingu landsins. Fyrst með tengilínum milli byggðarlaga, síðan héraðsveitum dreifbýlisins og enn seinna með bæði orkuvinnslu og rekstri þétt- býlisveitna víða um land, og þá hófst rafvæðing sveitanna. Tveimur fyrstu köflum raforkusögunnar er lokið, og nú erum við í þeim þriðja, með stórvirkjanagerð og landshlutatengingar sem meginverkefni. Nú er svo komið, að stór hluti orku fallvatna er notaður sem hráefni til efnaiðnaðar, og framundan eru enn stóráfangar í þeirri viðleitni að umbreyta orkunni í útflutningsverðmæti. Orkukreppan skall á; og viðhorf manna til nýt- ingar innlendrar orku gerbreyttust á einni nóttu. Vinstri ríkisstjórnin var við völd þá nótt, og þegar gránaði af degi, lá fyrir stefnuyfirlýsing i skýrslu- formi um, að hverju skyldi stefnt í næstu framtíð. Núverandi ríkisstjórn tók við völdum og gerði í sínum samstarfssamningi ráð fyrir, að höfuðmark- mið í orkumálum landsins yrði að nýta innlenda orku hvarvetna, sem slíkt væri mögulegt. Nú hófust allvíðtækar athuganir á orkukostum, og víða fannst jarðhiti á undarlega skömmum tíma. Annars staðar var hafizt handa við upphitun með raforku eða rafhitun aukin allverulega, þar sem hún var hafin. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.