Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Side 30

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Side 30
I lokin ber mér að geta þess, að starfsmenn Loranstöðvarinnar á Reynisfjalli vilja gjarnan dveljast áfram í Vík, ef þeir fengju vinnu við sitt hæfi. Nýskipuð atvinnumálanefnd Vestur-Skafta- fellssýslu leggur nú ríka áherzlu á, að þeim sé skapaður starfsgrundvöllur. I því sambandi má geta þess, að í athugun er að reisa í Vík verksmiðju til að draga og einangra rafmagnsvír. Ef úr verður, þá munu 15—20 manns fá þar atvinnu. Einnig er lögð áherzla á að efla þann iðnað, sem fyrir er á staðnum, svo unnt reynist að taka við unga fólkinu, sem bætist á vinnumarkaðinn. í Vík hefur ástandið lengi verið á þann veg, eins og raunar á þeim stöðum, sem svipað eru í sveit settir, að unga fólkið hefur orðið að hverfa að heiman í atvinnuleit. Þessi rofnu tengsl við æskustöðvarnar hafa orðið til þess, að það kernur ekki til baka, heldur sezt að í þéttbýlinu víðs fjarri heimahögum sínum. Margt bendir til þess, að mikil breyting sé að verða til batnaðar í þessum efnum í Vík. Unga fólkið flest vill dveljast áfram í heimabyggð sinni, ef það fær starf við sitt hæfi. Þess vegna ríður á að skapa sem fjölbreyttust starfsskilyrði, og þegar vissu marki er náð, þá koma aðrir þættir af sjálfu sér, svo sem: bætt menntunarskilvrði, betri heilbrigðisþjónusta og fjöl- þættara félagslíf. Verkefni sveitarstjórna 1 þessu óskipulega erindi hefur lauslega verið leit- 132 azt við að leiða rök að því, að meginuppistaða í Draumur Skaftfellinga um höfn er bundinn Dyrhólaey, sem er í baksviði þessarar myndar, en hún er tekin uppi á Reynisfjalli, þar sem tíu starfsmenn úr Vík höfðu fasta atvinnu við Lóranstöð fram til seinustu áramóta. Þeir hafa nú misst atvinnuna og flestir flutzt á brott úr hreppnum. Aðdjúpt er við Dyrhólaey og hafnaraðstaða talln góð, en hafnargerð mjög kostnaðarsöm. Greinarhöfundur, séra Ingimar Ingimarsson er á myndinni, sem Unnar Stefánsson tók. uppbyggingu fámennra þéttbýlisstaða á íslandi eigi að vera margvíslegur léttur iðnaður. Með því móti sé unnt að halda vel í horfinu og tryggja jafnframt búsetu unga fólksins í sinni heimabyggð. í þessum efnum bíða mikil verkefni, bæði fyrir einstaklinga, félög og ekki sízt sveitarstjórnir og forráðamenn í hverri byggð. Einnig ber brýna nauðsyn til, að Alþingi og ríkisstjórn leggi á það megináherzlu á næstu árum að beina fjármagni, í formi beinna styrkja og lána, til iðnaðaruppbyggingar úti á landi. Það mun tvímælalaust skipta strjálbýlið meira máli en flest annað. En fyrst og síðast er það hin andlega fæðan, sem aldrei má gleymast, því við lifum svo sannarlega ekki „af brauðinu einu saman.“ Nauðsynleg fræðsla og heilbrigð menning er sá grunnur, sem mest á riður. Leiðin til fullkomnunar í þeim efnum og að því marki verður sjálfsagt torsótt og erfið, og vafalaust verðum við að sætta okkur við, að á þeirri leið skiptist á skin og skúrir, hér eftir sem hingað til, samanber það, sem í vísunni stendur: „Yfir lifsins leggjabrjót leið er mörgum gangan. Stundum fékk ég storm í mót en stundum sól á vangann.“ Ef við aldrei missum trú á landið og höfund lífsins, þá mun sigur að lokum. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.