Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Page 37

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Page 37
að læknarnir og forsvarsmenn sveitarfélaganna fóru að berjast fyrir úrbótum, sem urðu til þess, að hafin var bygging á fyrstu læknamiðstöð í landinu. Hún tók þó ekki til starfa fyrr en árið 1974 og nefndist þá heilsugæzlustöð. Strax og hús heilsugæzlustöðvar- innar var fullbúið, var gamla sjúkraskýlið ásamt iTsúðum endurbyggt, og eru þar nú um 20 sjúkrarúm ásamt fæðingarstofu. Með þessari framkvæmd verður algjör bylting í allri aðstöðu til heilbrigðisþjónustu og heilsuverndar á þessu víðlenda svæði. Stærð húsnæðis heilsugæzlustöðvarinnar er 600 m2, þar af íbúð fyrir afleysingalækni 65 m2. fyrir lyf- sölu 45 m2 og húsnæði fyrir tannlæknastofu með tilheyrandi 35 m-. Fyrir almenna heilsugæzlu er um 450 m2 húsrými. I þessu húsnæði er starfsaðstaða fyrir 2 lækna og hjúkrunarkonu. Þá er þar rann- sóknarstofa, og starfar þar meinatæknir; einnig er röntgenstofa, aðgerðarstofa, aðstaða fvrir sérfræð- inga o. fl., svo sem fyrir læknaritara, móttaka og biðstofa, svo flest sé talið. Heilsugæzlusel á Borgarfirði A Borgarfirði er smá útibú frá stöðinni, heilsu- gæzlusel, sem er enn í bráðabirgðahúsnæði, ein stofa ásamt biðstofu, um 20 m2. Þar er ljósmóðir í hálfu starfi hjá heilsugæzlustöðinni. Þetta 600 m2 húsnæði kostaði, reiknað á núgildandi verðlagi, 95- 100 milljónir króna. Þessi tala er fundin með því að margfalda raunverulegan byggingarkostnað á framkvæmdatíma með þeirri hækkun á byggingar- vísitölu, sem hefur oröiö til dagsins i dag. Kostnaður við tækjabúnað er 10-11 milljónir króna á raunverði, eins og tækin kostuðu, þegar þau voru keypt. Þarna eru ekki meðtalin tannlæknatæki, sem sveitarfélögin eiga, en leigja tannlækninum. Samgöngutæki Heilsugæzlustöðvarinnar Nú vil ég koma að þvi, sem drepiö var á fyrr, en það er vandinn i sambandi við víðáttu heilsugæzlu- umdæmisins. Við þessum vanda er snúizt á þann veg, að við rekum þrjá sjúkrabílá: í fyrsta lagi sérbyggðan sjúkrabíl af Volvo-gerð, sem er i eigu Rauðakrossdeildarinnar á Héraði, en rekinn af Heilsugæzlustöðinni. 1 öðru lagi á Heilsugæzlustöðin nýja bifreið af Scout-gerð, sem er innréttuð sem sjúkrabíll. Þessi bifreið er hugsuð að nokkru sem torfærubíll, en er þó fremur þýð og mjög góð í akstri. I þriðja lagi er svo snjóbíll, sem er léttbyggður og innréttaður til að flytja sjúklinga. Bílarnir eru allir með talstöðvum. Með þessum bílum er nokkuð vel séð fyrir samgöngutækjum á landi. Þó hefur verið lítillega rætt um að kaupa vandaðan snjósleða. Þegar talað er um samgöngu- mál á Fljótsdalshéraði og Borgarfirði eystra, verður flugið alltaf mjög í huga manna, enda sívaxandi þáttur í öllum samgöngum. Ekki er nokkur vafi á því, að fengjust byggðir fleiri sjúkravellir, mundi það skapa mun meira öryggi þeim, sem fjærst búa heilsugæzlustöðvunum og í mörgum tilfellum auð- velda læknum að komast ferða sinna. Væri hægt að hafa afnot af þyrlu, gæti það bætt stórlega úr sam- göngum fyrir lækna, einkum þar sem sjúkravellina vantar svo tilfinnanlega. Eins verður svo sérstaklega að geta í samgöngu- málum okkar, en það er vandinn með vetrarríkið og snjóinn, sem lokar öllum leiðum marga mánuði á ári. Þó að snjóbíllinn sé til staðar, þarf meira til, ef samgöngur eiga að geta talizt viðunandi. Er þar fyrst að telja, hvað vegirnir í þessu læknisumdæmi eru viða hörmulega lélegir. Verði þeir ekki endur- byggðir, þá verða vetrarsamgöngur framvegis mjög óöruggar. Gamalt máltæki segir, ,,að það sé of seint að byrgja brunninn, þegar barnið er dottið ofan í“. Hvað getum við gert, sem vinnum að heilsuvernd, til þess að forða okkur sem lcngst af ævinni frá því að vcrða sjúkir og þurfa að nota lyf og ganga til lækna eða að liggja á sjúkrahúsum? Það er enginn vafi á þvi, að margt er unnt að gera, og við þetta tækifæri langar mig að minnast á nokkur atriði. Nú fyrir skömmu sýndi sjónvarpið merkilegt og mjög þakkarvert framtak, þar sem var námskeið fyrir þá, sem vildu hætta að reykja. Þessi áróður 139 Heilsuvernd frá sjónarhóli leikmanns SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.