Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Qupperneq 48
GRUNDARHVERFI
Á KJALARNESI
Bjarni Þorvarðsson á Bakka,
oddviti Kjalarneshrepps, segir frá
STJÓRNUM
Kjalarneshreppur varð skipulags-
skyldur á árinu 1963 eða fyrir 15
árum, en þá var farið að bera á til-
hneigingu til að skipta jörðum i
minni spildur undir íbúðarhús fólks,
sem ekki stundaði hinar hefðbundnu
atvinnugreinar í hreppnum, heldur
sótti atvinnu utan sveitar.
Höfuðborgarbyggðin var að teygja
arma sína upp á Kjalarnes. Mjólkur-
framleiðsla og sauðfjárrækt vék und-
an, og sveitarfélagið tók á sig mynd
þéttbýlissveitarfélaga i atvinnuhátt-
um. Sýnt þótti, að búskapur yrði ekki
stundaður nema á fáum býlum, eins
og nú hefur raunin á orðið.
Hinn 3. október 1969 var haldinn
stefnumarkandi fundur um skipu-
lagsmál Kjalarneshrepps með skipu-
lagsstjóra rikisins, landnámsstjóra og
fleirum. Þá hafði Kjalarneshrepp-
ur keypt jörðina Lykkju, en að at-
huguðu máli þótti heppilegast að
velja fyrsta þéttbýliskjarna hreppsins
stað í landnámsjörðinni Hofi á
Kjalarnesi. Þar munu landkostir
snemma hafa verið taldir miklir. Þar
bjó fyrstur manna Helgi bjóla, sonur
Ketils flatnefs, sem nam Kjalarnes
milli Leirvogsár og Botnsár, en hann
átti Þórnýju, dóttur Ingólfs Arnar-
sonar i Reykjavík, sem fyrstur byggði
ísland. Auk landkosta frá náttúrunn-
ar hendi var land þetta að öðru leyti
talið heppilegt undir þéttbýli, m. a.
vegna nálægðar við þjóðveg, barna-
skóla sveitarinnar á Klébergi og ný-
legt félagsheimili, Fólkvang. Hrepp-
urinn keypti þar 30 ha lands með
makaskiptum á árinu 1972, og var
fljótlega úr því hafizt handa um
skipulagningu þess. Land þetta er
vestan Vesturlandsvegar og sunnan
gatnamóta að býlunum Jörfa, Lykkju
og Arnarholti. Var í fyrstu gert gróft
aðalskipulag fyrir 240 ha svæði og
miðað við 3000 manna byggð, en
siðan ákveðið að gera deiliskipulag
fyrir 30 ha lands á jörðinni Hofi, sem
hreppurinn hafði þá eignazt, eins og
áður sagði.
Land þarna þótti ákjósanlegt undir
þéttbýli. Þvi hallar niður að sjónum,
og þykir landhalli þar vera mjög
hæfilegur undir byggð, 1:18 til jafn-
Bjarnl Þorvarðsson á Bakka.
aðar. Dýpi niður á fast er 1 — 2,5 m
svo ekki mun þurfa að sprengja fyrir
grunnum. Þegar hverfið verður full-
byggt, er gert ráð fyrir, að í þvi verði
151 ibúð, 112 í einbýlishúsum og 39
í raðhúsum, og mun þetta svara til
550 til 600 manna byggðar.
Næst Vesturlandsvegi er gert ráð
fyrir 5 lóðum undir snyrtilegan iðnað.
Með þvi er fyrirhugað bæði að veita
ibúum hverfisins atvinnu og eins að
veita þvi nokkurt skjól fyrir um-
ferðarhávaða frá Vesturlandsvegi.
Gerðar verða strangar kröfur um útlit
húsanna og umhverfi, miðað við
iðnaðarhúsnæði almennt til þessa.
Umhverfis byggðina liggur hring-
vegur, safnbraut, sem húsagötur
tengjast. Innan safnbrautarinnar er
þéttasti hluti byggðarinnar, raðhúsin
og hluti einbýlishúsanna. Þar á einn-
ig að koma verzlun, leikvöllur,
barnaheimili, litill skrúðgarður og
opið ræktað svæði, sem tengist saman
með kerfi göngustiga. Ibúar hverfisins
munu þá flestir ekki þurfa að fara yfir
umferðargötu til þess að komast í
verzlun og að framangreindum
stofnunum.
Verzlunin er höfð við innkeyrsluna
i hverfið til þæginda fyrir þá ibúanna,
sem koma akandi utan frá og þurfa að
verzla á leiðinni heim. Einnig er haft i
huga, að þar geti orðið áningarstaður
fyrir þá, sem leið eiga um Vestur-
landsveg.
Hverfið verður byggt upp i tveimur
áföngum og eystri hlutinn tekinn til
úthlutunar fyrst. Þar hefir nú verið
úthlutað 34 lóðum og fyrstu ibúar
hverfisins fluttu í það á seinasta ári.
Samtals verða í þessum fyrsta áfanga
42 einbýlishús og 26 ibúðir i raðhús-
um eða samtals 68 ibúðir. Liðlega
þriðjungur þeirra, sem fengið hafa
úthlutað lóðum í hinu nýja byggðar-
hverfi, er innansveitarfólk eða fólk,
sem á rætur sinar að rekja i Kjalar-
neshreppi. Hinir munu flestir vera
búsettir í Reykjavik eða annars staðar
á höfuðborgarsvæðinu, að sögn
Bjarna Þorvarðssonar.
Hverfi þetta, sem farið er að kalla
Grundarhverfi, hefur skipulagt Sig-
urður Thoroddsen, arkitekt á teikni-
stofu Skipulags rikisins, en Verk-
fræðistofa Sigurðar Thoroddsen sf. í
Armúla 4 annaðist verkfræðistörf við
SVEITARSTJÓRNARMÁL