Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Blaðsíða 49
það. Félagsmálaráðuneytið staðfesti
skipulag hverfisins hinn 30. október
árið 1975.
Til þess að sinna þörfum þéttbýlis
þarf fleira en gott land. Að sögn
Bjarna Þorvarðssonar er gott neyzlu-
vatn að finna við rætur Esju, og hefur
hreppsnefnd þegar látið gera þar
vatnsból og leitt vatn að nýja hverf-
inu. Rafmagnsveita Reykjavíkur hef-
ur nýlega endurnýjað háspennulinu
út Kjalarnes og við þá endurnýjun
gert ráð fyrir vaxandi byggð á þessum
stað. Þá hefur Orkustofnun kannað
möguleika á öflun heits vatns handa
hinu nýja hverfi, og standa vonir til,
að það megi fá með borun í 4 km
fjarlægð eða svo. Byggðin er, eins og
áður segir, við Vesturlandsveg, sem
lagður hefur verið varanlegu slitlagi
nær alla leiðina að hinu nýja hverfi. Á
árinu 1977 lét hreppurinn vinna að
gatnagerð í hverfinu fyrir 10 milljónir
króna.
Samhliða undirbúningi Grundar-
hverfisins hefur hreppsnefnd Kjalar-
neshrepps látið vinna að skipulagi
fyrir 20 smábýli milli Vesturlands-
vegar og Esju. Er þar ráðgert að leyfa
á 6 ha spildum byggingu íbúðarhúsa
ásamt útihúsum. Um það liggur há-
spennuiína, og þar er jarðdýpi víða
mikið, þannig að dreifð byggð þykir
henta þar. Haukur Viktorsson, arki-
tekt hjá Teiknistofunni Arkir hefur
gert þetta skipulag og jafnframt
frumdrög að landnýtingaráætlun,
sem orðið gæti vísir að aðalskipulagi
hreppsins.
Almennur hreppsfundur var hald-
inn að Fólkvangi í Kjalarneshreppi
laugardaginn 15. apríl 1978. Sveitar-
stjórn lagði fram ársreikninga fyrir
árið 1977 og fjárhagsáætlun fyrir árið
1978. Ársreikningarnir höfðu verið
sendir öllum gjaldendum hreppsins
fyrir fundinn. 1 skýrslu sveitarstjórnar
kom fram, að framkvæmdir höfðu
verið með mesta móti á árinu 1977.
Byggðar voru tvær skólastofur við
barnaskólann að Klébergi og sett raf-
hitun í allt skólahúsnæðið á staðnum.
Kostnaður við þessar framkvæmdir
nam á árinu kr. 16 milljónum.
Hreppurinn keypti tvær jarðir á
árinu, Tindstaði II og Bergvík, sem
er á milli Grundarhverfisins og skól-
ans á Klébergi. Kaupverð þessara
jarða var 30 milljónir. Ákveðið er að
selja Tindstaði II ábúanda Ytri-
Tindstaða, en halda eítir fjalllendi
sem afréttarlandi.
I undirbúningi er að leggja vatns-
veitu i austurhluta hreppsins, og
munu tíu býli njóta þeirrar veitu.
„Fyrir rúmlega áratug voru íbúar
Kjalarneshrepps komnir niður fyrir
200, en eru nú hinn 1. desember 1977
orðnir 262 eðaeins og þeir hafa flestir
orðið á þessari öid, rétt um aldamót-
in,“ sagði Bjarni Þorvarðsson á
Bakka, „og þeim fjölgar," bætti hann
við, er hann hvarf á braut til að sinna
erindum sinum i borginni.
Ljósmynd af iíkanl af skipulagi hins fyrlrhugaða Grundarhverfis í Kjalarneshreppi, sem nú er í uppbyggingu. Ljósmyndlna
af líkaninu tók myndasmiður Morgunblaðsins.
SVEITARSTJORNARMAL