Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Page 50
FORMLEGT SAMSTARF SVEITARFÉLAGANNA
í BORGARFJARÐARSÝSLU OFAN SKARÐSHEIÐAR
Samtal við Jón Þórisson, oddvita Reykholtsdals-
hrepps, formann hinna nýju samtaka.
Á árinu 1976 tóku sveitarfélögin í Borgarfjarðar-
sýslu ofan Skarðsheiðar upp formlegt samstarf sín á
milli. Að samstarfi þessu standa fimm hreppar. Þeir
eru Andakíls-, Skorradals-, Lundarreykjadals-,
Reykholtsdals- og Hálsahreppur.
Ibúatala hreppanna hinn 1. desember 1977 var
sem hér segir.
Andakílshreppur ..................... 263 íbúar
Skorradalshreppur...................... 68 íbúar
Lundarreykjadalshreppur................119 íbúar
Reykholtsdalshreppur ................ 324 íbúar
Hálsahreppur ..........................106 íbúar
eða samanlagt 880 íbúar
Fimm hreppsnefndarmenn eru í hverjum hreppi
eðasamtals 25 hreppsnefndarmenn á svæðinu. Þeir
komu saman til fundar í félagsheimilinu Brún í
Jón Þórisson
oddviti
Reykholtsdals-
hrepps.
Andakílshreppi vorið 1976, og var þá einróma sam-
þykkt að koma á formlegu alhliða samstarfi milli
hreppanna um hin ýmsu viðfangsefni, sem heppilegt
væri að vinna að sameiginlega.
Ákveðið var á fundinum að kjósa þessum sam-
tökum stjórn. Skyldu oddvitar hreppanna vera
sjálfkjörnir í hana. Formaður samtakanna var
kosinn Jón Þórisson, oddviti Reykholtsdalshrepps.
Árið 1969 var haldinn fundur með hreppsnefnd-
um sömu hreppa um hugsanlega sameiningu þeirra,
og eru hrepparnir i 9. athugunarsvæði í skýrslu
Sameiningarnefndar sveitarfélaga í Handbók sveit-
arstjórna númer 7, sem fylgdi Sveitarstjórnarmálum
á árinu 1969.
„Þetta er allt annað líf, síðan þetta samstarf komst
á,“ sagði einn af oddvitum samstarfshreppanna fyrir
nokkru. Þú ættir að ná í hann Jón Þórisson og biðja
hann að segja frá þessu í Sveitarstjórnarmálum,“
bætti hann við.
Þegar Jón Þórisson átti síðan leið til okkar, báðum
við hann að verða við þessum tilmælum.
— Hver voru tildrögin að þessu formlega sam-
starfi, Jón?
„Hrepparnir, sem um er að ræða, hafa um
nokkurt árabil staðið sameiginlega að rekstri barna-
skólans á Kleppjárnsreykjum, sem nú heitir reyndar
grunnskóli, og Andakílsskólans, sem starfar á
Hvanneyri. I þessu samstarfi höfum við fundið, að
þessir hreppar eiga sér í raun mun fleiri sameiginleg
hagsmunamál heldur en skólamálin. Má þar til
nefna samgöngumál, öryggismál eins og eldvarnir,
atvinnumál, sem betra væri að vinna að sameigin-
lega heldur en hver í sínu lagi. I rauninni má lita á
svæðið sem eina heild, a. m. k. landfræðilega.11
SVEIT ARSTJÓRN ARMÁL