Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Síða 9
LANDSÞING
- Löggjöf varðandi mengunar-
varnir, hvort heldur í lofti, sjó
eða á landi, verði endurskoð-
uð með hliðsjón af breyttri yfir-
stjórn umhverfismála. Verði
með því móti reynt að bæta úr
ágöllum í núgildandi löggjöf.
- Efldir verði fjárfestingarsjóðir
eða fundnar aðrar leiðirtil þess
að aðstoða sveitarfélög við að
fjármagna dýrar framkvæmdir
vegna úrbóta i mengunarmál-
um.
Mengunarvarnir vió
fiskeldisstöövar
Þingið vekur athygli sveitar-
stjórnarmanna á þeirri mengunar-
hættu, sem er samfara rekstri fisk-
eldisstöðva. Mun láta nærri, að
frárennsli frá eitt þúsund tonna
fiskeldisstöð samsvari úrgangi frá
borg á stærð við Reykjavík. Felur
þingið stjórn og fulltrúaráði sam-
bandsins að beita sér fyrir aukinni
kynningu á þessu máli og á þeim
mengunarvörnum, sem við verður
komið.
G róóurvernd
Þingið skorar á Alþingi og ríkis-
stjórn að veita stórauknu fé í þá
sjóði, sem stuðla að uppgræðslu
landsins og skógrækt. Jafnframt
telur þingið nauðsynlegt, að gert
verði átak í gróðurvernd til þess að
stemma stigu við þeirri gróður-
eyðingu, sem nú á sér stað. Efld
verði samvinna sveitarfélaga,
Landgræðslu ríkisins, Skógræktar
ríkisins og áhugamannafélaga. Þá
verði fræðsla og aðstoð við al-
menning á þessu sviði aukin.
Aukiö sjálfstæöi sveitar-
stjórna í skipulagsmálum
Þingið beinir þeim tilmælum til
félagsmálaráðherra, að við endur-
skoðun skipulagslaga verði sjálf-
stæði sveitarfélaga og samtaka
þeirra í skipulagsmálum aukið
verulega frá því, sem nú er. Jafn-
framt verði þeim tryggt nægilegt
fjármagn til þess að annast þessa
starfsemi.
Álit allsherjarnefndar
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hafði
orð fyrir allsherjarnefnd þingsins,
og síðan urðu allmiklar umræður
um einstakar tillögur nefndarinnar.
Nefndin hafði orðið sammála
um að mæla með tillögum varð-
andi breytingar á lögum sam-
bandsins, og hlutu þær einróma
samþykki.
Breytingar á lögum
sambandsins
Samþykktar voru breytingar á
lögum sambandsins svofelldar:
a) Við 11. gr. laganna bætist ný
málsgrein, svohljóðandi:
,,Fallí niður umboð bæði aðal-
manns og varamanns hans í stjórn
eða fulltrúaráði, skal fulltrúaráðið
kjósa menn í stað þeirra til loka
kjörtímabilsins."
b) Við 15. gr. bætist ný máls-
grein, svohljóðandi:
„Stjórnin getur skipað fasta-
nefndir til að fjalla um einstök mál
eða málaflokka. Umboð slikra
nefnda fellur niður við stjórnar-
skipti."
Þá var svofelld tillaga stjórnar-
innar samþykkt:
XIII. landsþing Sambands ísl.
sveitarfélaga samþykkir að fela
stjórn sambandsins að taka til
endurskoðunar 4. gr. laga sam-
bandsins með hliðsjón af breyt-
ingum á fjölda og stærð sveitar-
félaga í landinu frá stofnun sam-
bandsins. Verði niðurstaða stjórn-
arinnar lögð fyrir XIV. þing sam-
bandsins að undangenginni um-
fjöllun í fulltrúaráði þess.
Fjórða grein laga sambandsins
segir m.a. til um, hve marga full- J
trúa hvert sveitarfélag kýs á lands- j
þing miðað við íbúatölu sína.
Frumvarp til laga um
tekjustofna sveitarfélaga
Hér fara á eftir ályktanir þær,
sem landsþingið gerði að tillögu
allsherjarnefndar:
XIII. landsþing Sambands ís-
lenzkra sveitarfélaga lýsir stuðn-
ingi við meginatriði þeirra tillagna,
er fram koma í frumvarpi til laga
um breytingar á lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga. Þingið fagnar
ákvæðum, sem rýmka rétt sveitar-
félaga til þess að ákveða nýtingu
tekjustofna sinna sjálf, og bendir
á, að eðlilegt er að fela sveitarfé-
lögunum fullt og óskorað vald í
þeim efnum. Sérstaklega er lýst
yfir stuðningi við fækkun undan-
þága frá álagningu fasteignaskatta
og aðstöðugjalda.
Þingið vísar frumvarpinu til
stjórnar sambandsins til frekari
umfjöllunar, einkum um þau
ákvæði frumvarpsins, sem fjalla
um hlutverk jöfnunarsjóðs. Skal í
því sambandi sérstaklega at-
hugað, hvort unnt sé að einfalda
fjármálaleg samskipti rikis og
sveitarfélaga.
Fram kom tillaga um að vísa frá
síðustu setningu fyrri málsgreinar
tillögunnar, en var felld með 53 at-
kvæðum gegn 31.
Lög um félagslegar
íbúóabyggingar — verka-
mannabústaöakerfiö —
Þingið telur mjög brýnt að taka
nú þegartil heildarendurskoðunar
löggjöfina um félagslegar íbúða-
byggingar.
Reynslan hefur sýnt, að núver-
andi kerfi er gallað og hefur ekki
þróazt í samræmi við markmið lag-
anna. Má í þessu sambandi sér-
staklega benda á ákvæði um
kaupskyldu sveitarfélaga svo og
ákvæði um mat á innleystum
íbúðum.
Nú þegar hefur skapazt alvar-
legt ástand víða um land vegna
óvissu um framkvæmd laganna,
SVEITARSTJÓRNARMÁL 223