Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Page 17
LANDSÞING
um okkar er verulegur ágreiningur
um millistjórnstigiö, þar sem þaö
er ekki talið hafa skilað þeim
árangri, sem aö var stefnt, einkum
í strjálbýli, t.d. í Norður-Svíþjóð og
í Noregi.
Ég legg áherzlu á að efla sveit-
arfélögin sjálf og stækka þau og
flytja til þeirra aukin verkefni. Ef
vilji er í raun fyrir hendi, tel ég, að
hægt sé að ná verulegum árangri
á því sviði einmitt nú í kjölfarsetn-
ingar nýrra sveitarstjórnarlaga. Við
höfum líka góða reynslu af sam-
vinnu sveitarfélaga um ýmis verk-
efni. Með nýju lögunum höfum við
þá valkosti að stækka sveitarfé-
lögin, efla samvinnu þeirra á hér-
aðsgrundvelli og á landshluta-
grundvelli þannig, að þau séu fær
um að taka að sér aukin verkefni
og veita nýja og betri þjónustu.
Um þessi mál þarf að fara fram
ítarleg umræða, þar sem menn
velta fyrir sér rökum með og móti
þriðja stjórnsýslustiginu. Komi
það hins vegar í Ijós, eftir nokkra
reynslu af nýju sveitarstjórnarlög-
unum, að sveitarstjórnarmenn al-
mennt hafi áhuga fyrir að taka það
upp og telji það forsendu fyrir því
að rétta hlut landsbyggðarinnar,
mun ég verða síðastur manna til
að berjast á móti því.
Ég minntist hér í upphafi á 40
ára afmæli Sambands íslenzkra
sveitarfélaga á sl. ári. Félagsmála-
ráðuneytið á 40 ára afmæli í þess-
um mánuði. Samstarf ráðuneytis-
ins og sambandsins hefur að sjálf-
sögðu alltaf verið mikið og náið.
Ég þakka forystumönnum sam-
bandsins og öllum sveitarstjórnar-
mönnum fyrir samstarfið á þeim
tima, sem ég hef haft með málefni
ráðuneytisins að gera.
Ég vona, að störf landsþingsins
verði farsæl og árangursrík í þágu
sveitarfélaganna og íbúa þeirra og
fyrir þjóðina í heild.
TRYGGIR ÞÉR ÞÆGINDI FYRSTA SPÖLINN
Bíll frá Hreyfli flytur þig þægilega og á
réttum tíma á flugvöllinn.
Þú pantarfyrirfram
Við hjá Hreyfli erum tilbúnir að flytja þig á
Keflavíkurflugvöll á réttum tima í mjúkri límosinu.
Málið er einfalt. Þú hringir í sima 685522 og
greinir frá dvalarstað og brottfarartíma. Við
segjum þér hvenær bíllinn kemur.
Eitt gjald fyrir hvern farþega
Við flytjum þig á notalegan og ódýran hátt á
flugvöllinn. Hver farþegi borgar fastgjald. Jafnvel
þótt þú sért einn á ferð borgarðu aðeins
fastagjaldið.
Við vekjum þig
Ef brottfarartími er að morgni þarftu aö hafa
samband við ollur milli kl. 20:00 og 23:00 kvöldið
áður. Viðgetum séð um að vekja þig meðgóðum
fyrirvara, ef þú óskar. Þegar brottfarartími er
síðdegis eða að kvöldi nægir að hafa samband
við okkur milli kl. 10:00 og 12:00 sama dag.
UREYF/LL
685522
SVEITARSTJÓRNARMÁL 231