Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Qupperneq 22
AFMÆLI
úr ríkissjóði á vegum ráðuneytis-
ins.
Jafnréttismálin heyra undir
félagsmálaráðuneytið, sbr. lög nr.
65/1985, en dagleg umsýsla
þessara mála er hjá skrifstofu
Jafnréttisráðs.
Á fundi ríkisstjórnarinnar 18.
apríl 1978 var ákveðið, að félags-
málaráðuneytið skyldi fara með
umhverfismál innan Stjórnarráðs
íslands.
Auk þess, sem hér hefur verið
nefnt, fer ráðuneytið með ýmis
mál, sem tengjast starfsemi
Evrópuráðsins.
Frá stofnun félagsmálaráðu-
neytisins á árinu 1946 hafa alls
fjórtán ráðherrar gegnt störfum
félagsmálaráðherra. Peir eru:
1. Finnur Jónsson frá stofnun
ráðuneytisins - 1947
2. Stefán Jóhann Stefánsson
1947-1949
3. Ólafur Thors 1949 - 1950
4. Steingrímur Steinþórsson 1950
- 1956
5. Hannibal Valdimarsson 1956 -
1958 og 1971 - 1973
6. Friðjón Skarphéðinsson 1958 -
1959
7. Emil Jónsson 1959 - 1965 og
1970-1971
8. Eggert G. Þorsteinsson 1965 -
1970
9. Björn Jónsson 1973 - 1974
10. Magnús Torfi Ólafsson 1974
H.Gunnar Thoroddsen 1974 -
1978
12. Magnús H. Magnússon 1978 -
1980
13. Svavar Gestsson 1980 - 1983
og
14. Alexander Stefánsson frá 1983
í þessi fjörutíu ár hafa eftirtaldir
menn gegnt starfi ráðuneytisstjóra
í félagsmálaráðuneytinu:
Jónas Guðmundsson 1946 - 1953
Hjálmar Vilhjálmsson 1953 - 1973
og Hallgrímur Dalberg frá 1973.
Þar sem þetta stutta yfirlit yfir
fjörutíu ára feril félagsmálaráðu-
neytisins birtist í tímaritinu Sveitar-
stjórnarmálum, er kannske ekki úr
vegi að geta þess, að það var
Jónas Guðmundsson, fyrsti skrif-
stof ustjóri (ráðuneytisstjóri)
félagsmálaráðuneytisins, sem hóf
útgáfu þessa tímarits á árinu 1941.
Sveitarstjórnarmál koma enn út og
fjalla sem í upphafi um málefni
íslenzkra sveitarfélaga og eru
gagnmerkt heimildarrit um íslenzk
sveitarstjórnarmálefni. Jónas var
útgefandi þessa tímarits fram til
ársins 1947, að Samband ís-
lenzkra sveitarfélaga tók við út-
gáfunni. Félagsmálaráðuneytið
hefur frá upphafi átt mikil og góð
samskipti við þetta tímarit og rit-
stjóra þess.
Hvað snertir Samband íslenzkra
sveitarfélaga, þá er skemmst frá
því að segja, að samvinna og sam-
starf ráðuneytisins við þau sam-
tök, stjórn þeirra og fram-
kvæmdarstjóra hafa í umrædd
fjörutíu ár verið með þeim
ágætum, að ekki verður á betra
kosið. Sama gildir um samskipti
ráðuneytisins við sveitarstjórnar-
menn um land allt.
Ég vil að lokum óska félags-
málaráðuneytinu og starfsfólki
þess til hamingju með þessi
merku tímamót og bið því bless-
unar í starfi um alla framtíð.
SVEITARSTJORNIR
Getum útvegaó
hina viðurkenndu
„Epoke”-sand-
salt - og áburðar-
dreifara
^iOenclel k
UMBOÐS & HEILDVERZLUN
Sörlaskjóli 26, 107 Reykjavík. Símar: 91-15464 og 15461
236 SVEITARSTJÓRNARMÁL