Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Qupperneq 24

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Qupperneq 24
AFMÆLI Féfag ráógjafarverk- fræéinga 25 ára Fyrr á þessu ári varð Félag ráó- gjafarverkfræðinga 25 ára. i tilefni afmælisins efnir félagið til ráó- stefnu á Flótel Loftleiðum um miójan nóvember. Þar verður fjallaó um húsbyggingar og stöóu byggingariðnaðarins nú á tímum, en jafnframt reynt að skyggnast inn i framtíðina. Fyrsta ráðgjafarverkfræðistofan hér á landi, Verkfræðistofa Sigurð- ar Thoroddsen, tók til starfa árið 1932. Lengi vel var hún sú eina sinnartegundareðaframyfir 1950. Sigurður Thoroddsen var síðan frumkvöðull stofnunar Félags ráð- gjafarverkfræðinga. Flann hafði samband við danska verkfræðinga og stóð í bréfasambandi við Al- þjóðleg samtök ráðgjafarverkfræð- inga, FIDIC, Fédération inter- nationale des ingénieurs conseils, og undirbjó þannig stofnun félags á íslandi. Félag ráðgjafarverkfræðinga var stofnað 21. febrúar 1961. Með stofnun þess var fyrst og fremst ætlunin að gæta hagsmuna félags- manna, sem voru fáir til að byrja með, en fjölgaði síðan ört. Mark- miðið var að efla álit þeirra og stuðla að faglegum vinnubrögð- um. Má segja, að stofnun félagsins hafi verið ráð í tíma tekið, því á fyrstu árum sjöunda áratugarins var mikil gróska í stofnun verk- fræðistofa hérlendis. Hvaó er ráögjafarverk- fræöingur? Verkfræðiráðgjöf er sjálfstæð at- vinnugrein, sem felst í því að veita þjónustu í tæknilegum efnum gegn þóknun fyrir einstök verkefni. Sú þjónusta felst meðal annars í því að finna hagkvæmar leiðir fyrir við- skiptavini að settu marki. Niður- stöðurnar birtast síðan í greinar- gerðum, verklýsingum, teikn- ingum og kostnaðaráætlunum. Ráðgjafarverkfræðingur kallast sá verkfræðingur, sem einn eða i samvinnu við aðra hefur verk- fræðiráðgjöf að aðalstarfi. Frá upphafi hefur Félag ráð- gjafarverkfræðinga sett einstakl- ingum og fyrirtækjum innan sinna vébanda ákveðin skilyrði fyrir inn- göngu í félagið. Það er gert eftir erlendri fyrirmynd og þykir nauð- synlegt til þess að byggja starfs- stéttina á traustum grunni. Eftirfarandi siðareglur eru teknar úr lögum félagsins: Félagsmaður getur hver sá ráð- gjafi orðið, sem uppfyllir eftir- farandi skilyrði: 1. Flann skal hafa lokið fullnaðar- prófi í verkfræði frá Fláskóla íslands, tæknifræðiprófi frá Tækniskóla íslands eða lokið hliðstæðu prófi frá annarri viðurkenndri menntastofnun, sem að mati stjórnar FRV telst tilsvarandi undirstaða. 2. Hann skal að loknu prófi hafa starfað full átta ár á því sviði, sem hann hyggst stunda sem ráðgjafi. 3. Hann skal hafa starfað a.m.k. síðustu þrjú árin í FRV-fyrir- tæki eða rekið sjálfstæða ráð- gjafarstarfsemi a.m.k. síðustu fimm árin. 4. Hann skal eiga hlutdeild í og starfavið FRV-fyrirtæki. 238 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.