Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Qupperneq 25
AFMÆLI
5. Hann skal hafa sýnti starfi
hæfni og getu til þess aö reka
sjálfstæöa ráðgjafarstarf-
semi.
6. Hann skal hafa ráögjöf sem
aðalstarf.
7. Hann má ekki hafa hagsmuna
að gæta af framleiðslu-, verk-
taka- eða verzlunarfyrirtæki
eða annarri starfsemi, sem
hefur áhrif á starf hans sem
óháðs ráðgjafa.
Stjórnin getur veit undanþágu
frá 2. og 3. lið þessarar greinar,
þegar sérstök ástæða þykir til.
í sambandi vió sveitar-
félögin
Á þeim tíma, sem Félag ráð-
gjafarverkfræðinga hefur starfað,
hafa sveitarfélög um land allt sótt
verkfræðiþjónustu til hinna ýmsu
verkfræðistofa innan vébanda
þess. Það eru ófá verkefni, sem
þar hafa verið unnin, en til dæmis
má nefna vatnsveitur, hitaveitur,
skólplagnir, gatnagerð, skólahús-
næði, íþróttamannvirki, stjórn-
sýsluhúsnæði og félagsheimili.
Uppbygging atvinnurekstrar hefur
líka í mörgum tilfellum verið unnin
af verkfræðistofum. Að auki kaupa
sveitarfélögin mælingarþjónustu í
ríkum mæli af verkfræðistofum.
Hugvitió er útflutnings-
vara
Félag ráðgjafarverkfræðinga
varð aðili að FIDIC, Alþjóðlegum
samtökum ráðgjafarverkfræðinga,
árið 1964. Þá hófst einnig náin
samvinna við Norðurlandafélögin,
og hittast stjórnir þeirra árlega til
skiptis á Norðurlöndum.
Það hefur ekki verið ýkja mikið
um það á liðnum árum, að íslenzkir
ráðgjafarverkfræðingar hafi tekið
að sér verkefni erlendis. Enda má
segja, að næg verkefni hafi verið
hér heima fyrir. Hins vegar búa ís-
lendingar yfir sérþekkingu á ýms-
um sviðum, sem gæti reynzt hin
bezta útflutningsvara. Hér nægir
að nefna ráðgjöf í nýtingu jarðhita
og á sviði fiskvinnslu.
Nú horfa menn ef til vill í auknum
mæli til erlendra verkefna, þvi inn-
lendum verkefnum hefur farið
fækkandi. Á erlendum markaði
hefur það að sjálfsögðu mikla þýð-
ingu að vera aðili að FIDIC, ekki
sízt þegar um er að ræða verkefni á
vegum alþjóðastofnana.
Fyrst og síöast
Fyrsta og síðasta boðorð ráð-
gjafarverkfræðingsins er að gæta
hagsmuna viðskiptavinar síns í því
verki, sem hann tekur að sér. Úr-
lausnir hans skulu vera í samræmi
vi.ð lög, reglugerðir, viðurkennda
tæknilega staðla og almenna verk-
fræðiþekkingu eins og hún gerist
bezt á hverjum tíma. Ráðgjafar-
verkfræðingnum ber að taka tillit til
almennra umhverfissjónarmiða,
og hann skal ávallt gæta þag-
mælsku um hagi viðskiptavinar
síns.
Þegar um er að ræða hönnun
húss eða mannvirkis, skiptir nota-
gildi þess og útlit sköpum. Sé
skipulagi áfátt eða kastað höndum
til undirbúningsvinnu, er líklegt, að
slíkt hefni sín síðar með fjárútlátum
eða öðru óhagræði. Þess vegna er
mikilvægt að velja ráðgjafarverk-
fræðing með reynslu, hæfni og
þekkingu á því verki, sem vinna
skal.
Það er einnig æskilegt, að við-
komandi búi yfir vitneskju urn stað-
hætti, atvinnulíf og markaðsað-
stæður, þar sem verkið á að vinna.
Það getur reynzt dýrt að spara
kostnað við verkfræðiráðgjöfina,
enda er hún aðeins lítið brot af
heildarkostnaði verksins i flestum
tilfellum.
Lágþrýstiskiljur í uppsetningu i varmaorkuverinu i Svartsengi. Ljósm. Mats Wibe
Lund.
SVEITARSTJÓRNARMÁL 239