Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Síða 33
ÍÞRÓTTIR QG ÚTIVIST
tÞRÓTTAMtS ö*a GA-lanULMtiXC
CAiiÞÁKXltóKT
Afstödumynd, sem sýnir íþróttahúsiö og skólahúsin ínágrenni þess. íþróttahúsiö erlengsttil vinstriámyndinni. Slitnalínan
þvertyfirhúsiðgefurtilkynna, aöaöeins hálft húsiö hefurveriö byggt.
Heildarverð 1. áfanga framreikn-
að á verðlagi janúarmánaðar 1986,
þegar húsið var tekið í notkun, er
um það bil 56 milljónir króna.
í þessum 1. áfanga er íþróttasal-
ur, sem er 23x29 metrar að stærð.
Með því að skipta salnum er hægt
að kenna tveimur hópum samtím-
is. í salnum er löglegur keppnis-
völlur í körfubolta, blakvöllur, 3
badmintonvellir og handboltavöll-
ur, sem ekki er löglegur keppnis-
völlur fyrr en húsið er komið í fulla
stærð. Hver völlur er auðkenndur
með sérstökum lit á gólfi.
í austurálmu byggingarinnar er
áhaldageymsla, búningsherbergi,
4 kennaraherbergi ásamt anddyri
og afgreiðslu. í vesturálmu, sem
ekki er fullbúin enn, verður að-
staða fyrir áhorfendur ásamt rými
fyrir loftræstibúnað.
Pótt þessi áfangi hússins sé tek-
inn í notkun, er hann alls ekki full-
búinn. Vesturálma er ófrágengin,
loftræstibúnað vantar í salinn, og
áhorfendabekkir, sem koma eiga á
norðurvegginn, eru ekki komnir.
Einnig er gert ráð fyrir, að klæðning
komi í salarloftið.
Einn galli fylgir áfangabyggingu
sem þessari, og hann er sá, að
þegar áfanganum lýkur, er hætta á,
að framkvæmdir stöðvist alveg um
langan tíma. Ég er þeirrar skoðun-
ar, að reynt verði að halda áfram
við næsta áfanga, þótt dregið sé úr
framkvæmdahraða, þannig að inn-
an fárra ára sé hægt að Ijúka þess-
ari byggingu.
Eins og áður sagði, teiknaði
Stefán Jónsson, arkitekt, húsið.
Verkfræðistofa Benedikts Boga-
sonar, Borgartúni 23 í Reykjavík,
sá um útreikninga á burðarþoli og
aðra verkfræðivinnu; Verkfræði-
stofan Kvasir hf., Ármúla 11 í
Reykjavík, Hafsteinn Blandon,
hannaði loftræstingarkerfi og
Ólafur Gíslason, raftæknifræðing-
ur, Hofteigi 22 í Reykjavík, raf-
lagnir.
Trésmiðjan Borg hf. á Sauðár-
króki hefur verið yfirverktaki allan
byggingartímann og yfirsmiður
Bragi Skúlason, byggingarmeist-
ari. Margir undirverktakar tóku síð-
an að sértiltekna þætti. Tæknideild
bæjarins hafði umsjón og eftirlit
með verkinu í heild.
Við vígslu hússins færði Tré-
smiðjan Borg hf. íþróttahúsinu að
gjöf samtals 56 keppnis- og
æfingabolta og Búnaðarbankaúti-
búið á Sauðárkróki keppnistöflu.
Nýja íþróttahúsið bætir úr brýnni
þörf skólanna í bænum, bæði
grunnskólans og fjölbrautaskól-
ans, sem hafa báðir vaxið ört
á liðnum árum. En húsið er ekki
aðeins skólamannvirki. Hér geta
hin frjálsu félög íþróttafólks, klúbb-
ar og einstaklingar fengið aðstöðu
til íþróttaiðkana, en í boltaíþróttum
hefur íþróttafólk orðið að fá annars
staðar inni með heimaleiki sína.
Með auknum tómstundum bæjar-
búa og fjölgun ungmenna í skólun-
um er ekki vafi á, að íþróttahúsið
bætir úr brýnni þörf til líkamsræktar
og íþróttaiðkana.
SVEITARSTJÓRNARMÁL 247