Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Page 37

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Page 37
KJARAMÁL Ný stjórn í launanefnd sveitarfélaganna Aðalfundur launanefndar sveitarfélaganna var haldinn í tengslum við landsþing sam- bandsins 12. september sl. Formaður nefndarinnar, Einar I. Halldórsson, fv. bæjarstjóri í Hafnarfirði, flutti skýrslu um starf nefndarinnar frá því hún var stofnuð í janúar 1982. Hann gerði grein fyrir þeim samningalotum, sem verið hafa á tímabilinu og hvernig launanefndin hefur komið við sögu í þeim kjarasamningum. Á ýmsu hefur gengið og brestir komið í samstarfið. Formaður sagði það hljóta að vera megin- verkefni næstu stjórnar launa- nefndarinnar að fá úr því skorið, hvort raunverulegur vilji sé hjá sveitarfélögum í landinu til þess að hafa samstarf í launamálum. Síðan verði að meta, hvort og þá með hvaða hætti þessu samstarfi verður fram haldið. Talsverðar umræður urðu á fundinum um mikilvægi þessa samstarfs og framtíð launa- nefndarinnar. Samþykktar voru lítilsháttar breytingar á samþykktum launa- nefndarinnar. Þær breytingar eru helztar, að stjórn skuli kosin til tveggja ára í stað fjögurra áður, að reikningar launanefndarinnar fylgi reikningum sambandsins og að endurskoðendur reikninga launa- nefndarinnar verði þeir sömu og endurskoði ársreikning sam- bandsins. Þá var á fundinum kosin ný stjórn launanefndarinnar. Stjórnina skipa Rannveig Guð- mundsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Kópavogi; Ingimundur Sigur- pálsson, bæjarstjóri, Akranesi; Jón Gauti Jónsson, bæjarstjóri Garðabæ; Ellert Eiríksson, sveitarstjóri í Gerðahreppi, og Haraldur L. Haraldsson, bæjar- stjóri á ísafirði. í varastjórn eru Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, Páll Guðjónsson, sveitarstjóri í Mosfellshreppi, Bjarni Aðalgeirsson, bæjarstjóri á Húsavík, Ásgeir Magnússon, bæjarstjóri í Neskaupstað, og Karl Björnsson, bæjarstjóri á Selfossi. Jón Gauti Jónsson er formaður nefndarinnar og Rannveig Guð- mundsdóttir varaformaður. " 1 ' Framleiðslunýj ung HOLUFYLLIR sem lætur hvarfió hverfa á stundinni HREINSID FYLLID SLÉTTID Á stundinni er hægt með einfoldum verkfærum og HOLUFYLLI að gera við holur í malbikuðum eða steyptum götum, plönum, hafnarbökkum og flugbraut- um. Viðgerð getur farið fram í hvaða veðri sem er án teljandi umferðartafa, án klíst- urs við hjólbarða og endurviðgerðartíðni er mun minni. Framkvæmdasparnaður áætlaður 33%. L PÓLAR hf., Einholti 6, Reykjavík, símar 91-18401 og 91-15230. SVEITARSTJÓRNARMÁL 251

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.