Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Síða 39

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Síða 39
SAMEINING SVEITARFÉLAGA Athugun á sameiningu hreppa Austui strandarsýslu Á fundi sýslunefndar Austur- Barðastrandarsýslu 24. júlí sl. var samþykkt að skora á félagsmála- ráðuneytið að kanna alla mögu- leika á að sameina alla hreppa Austur-Barðastrandarsýslu í einn hrepp, áður en til umræðu kemur að leggja Múlahrepp niður og sameina hann öðrum hreppum. „Ef bráð þörf er á að leysa þetta mál, mælir sýslunefnd með sam- einingu við Gufudalshrepp" sagði í ályktun sýslunefndarinnar, sem gerð var vegna erindis, sem borizt hafði frá félagsmálaráðneytinu vegna þess að hreppsnefnd hafði ekki verið kosin í Múlahreppi í hin- um almennu sveitarstjórnarkosn- ingum á sl. vori. í framhaldi þessarar samþykktar voru tveir menn kosnir til þess að vinna að sameiningu hreppa í sýslunni samkvæmt 10. kafla nýju sveitarstjórnarlaganna. Þeir voru Einar Hafliðason, Fremri-Gufudal í Gufudalshreppi, og Sveinn Guð- mundsson í Miðhúsum í Reyk- hólahreppi. Jafnframt var sýslu- maður, Stefán Skarphéðinsson, beðinn að boða til fundar með full- trúum allra hreppa sýslunnar. í hreppum Austur-Barða strandarsýslu voru hreppar og íbúatala þeirra eins og hér segir hinn 1. desember 1985: Geiradalshreppur .. 82 íb. Reykhólahreppur . 220 íb. Gufudalshreppur ... 44 íb. Múlahreppur .... ... 13 íb. Flateyjarhreppur ... 29 íb. Samtals í sýslunni . 388 íb. Eina þéttbýlisýslunnareráReyk- hólum, þar sem búa 96 íbúar. í sumar hafa síðan verið haldnir Uppdrátturinn sýnirhreppa Austur-Barðastrandarsýslu, sem nú eriathugun, að sameinist. Sýndar eru útlínur sýslunnar, hreppamörk og lögbýli með bústofni sam- kvæmt Jaróabók 1983-1984. Uppdráttinn gerði Lilja Karlsdóttir, Byggðastofnun. tveir fundir með fulltrúum hrepp- anna. Fyrri fundurinn var haldinn í Bjarkarlundi 27. ágúst. Á hann komu auk sýslumanns og fulltrúa hreppanna Jóhann Einvarðsson, aðstoðarmaður félagsmálaráð- herra, og Þórhildur Líndal, deildar- stjóri í félagsmálaráðuneytinu, Jó- hann T. Bjarnason, framkvæmda- stjóri Fjórðungssambands Vest- firðinga, og Einar Guðmundsson, Kvígindisfirði, fulltrúi nýstofnaðs landeigendafélags I Múlahreppi. Á fundinum var ákveðið að fjalla áfram um málið í hreppsnefndun- um og að boða síðan til framhalds- fundar með tveimur fulltrúum hvers hrepps. Seinni fundurinn var svo hald- inn á Reykhólum 18. september. Þar voru saman komnir tveir full- trúar frá hverjum hreppanna svo og Jóhann T. Bjarnason og Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður; sem stjórnaði fundinum. Fulltrúar hreppanna tjáðu sig um hugsan- lega sameiningu hreppanna, og var umsögn þeirra yfirleitt jákvæð. í lok fundarins var samþykkt samhljóða: 1) að allir hreppar sýslunnar sameinist í eitt hreppsfélag. 2) að stefnt verði að þvl, að sameiningin öðlist gildi um næstu áramót. 3) að hreppsnefndarkosningar SVEITARSTJÓRNARMÁL 253

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.