Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Síða 42
BÆKUR OG RIT
Sveitarstjórnarlög
ásamt skýringum og
athugasemdum
Sambandið hefur gefið út
númer 8 í flokki fræðslurita bókina
, .Sveitarstjórnarlög nr. 8/1986
ásamt skýringum og athugasemd-
um“, eftir Björn Friðfinnsson, for-
mann sambandsins. í inngangi er
rakin löggjöf um sveitarfélög hérá
landi frá öndverðu og sagt frá
endurskoðun sveitarstjórnarlag-
anna, sem í gildi hafa verið frá ár-
inu 1961.
Síðan er í ritinu fjallað um hvern
hinna 12 kafla nýju laganna og birt
hver lagagrein fyrir sig og með
henni skýring. I formála kveðst
höfundur fyrst og fremst styðjast
við greinargerð með frumvarpi til
laganna og við greinargerð með
tillögum endurskoðunarnefndar
sveitarstjórnarlaga, sem hann átti
sæti í, en frumvarpið var byggt á
tillögum nefndarinnar.
Aftan við meginkafla ritsins með
skýringum á einstökum greinum
laganna er atriðisorðaskrá, þar
sem vísað er til lagagreina, þar
sem umrædd orð koma fyrir.
Fræðslurit þetta er 104 bls. á
stærð. Það kostar 500 krónur ein-
takið.
Árbók sveitarfélaga
1986
Árbók sveitarfélaga hefur verið
gefin út í annað sinn, og er fyrir
árið 1986. Hún er 128 bls. að
stærð með nokkru meiri upplýs-
ingar heldur en fyrsta árbókin,
sem kom út á sl. ári. Fremst í ritinu
eru kaflar um Samband islenzkra
sveitarfélaga, landshlutasamtök,
launanefnd, Tölvuþjónustu, Lána-
sjóð, Innheimtustofnun og
Hafnasamband sveitarfélaga
Síðan er viðamesti kaflinn, um
fjármál sveitarfélaga. í honum eru
m.a. birt yfirlit um rekstrartekjur
sveitarsjóða 1983 - 1986, tekjur
og gjöld sveitarfélaga á Ibúa á ár-
inu 1984, álögð sveitarsjóðsgjöld
1985 á íbúa og álögð útsvör og
aðstöðugjöld í ár. Birtar eru
álagningarreglur í kaupstöðunum í
ár og innheimtuhlutfallið á árunum
1982 - 1985, yfirlit um framlag
kaupstaðanna til Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs og til sjúkrasam-
laga árin 1983 og 1984 og um
framlög kaupstaða til barnaheim-
ila.
Þá er í árbókinni listi yfir ný lög
frá síðasta Alþingi um sveitar-
stjórnarmál, skrá um íbúafjölda
sveitarfélaganna 1. des. 1985,
yfirlit um fjölda fastra starfsmanna
sveitarfélaga í ár, nöfn fram-
kvæmdastjóra sveitarfélaganna og
yfirlit, er sýnir fjölda nemenda og
kennara grunnskólanna starfs-
veturinn 1985-1986. Loks er í ár-
bókinni skrá yfir nokkrar opinberar
stofnanir. Lúðvík Hjalti Jónsson,
viðskiptafræðingur hjá samband-
inu, tók saman efni árbókarinnar.
Árbókin er fáanleg á skrifstofu
sambandsins og kostar 600 krón-
ur.
Skrá yfir efni Sveitar•
stjórnarmála 1981—
1985
Sambandið hefur gefið út sem
Handbók sveitarfélaga númer 19
Skrá yfir efni Sveitarstjórnarmála
41. - 45. árgangs, þ.e. fimm síð-
ustu árganga tímaritsins, þann 41.
- 45. í röðinni. Fyrir nokkrum árum
kom út skrá með efni fyrstu fjöru-
tíu árganga tímaritsins, þ.e. ár-
ganganna 1941 - 1980. Efnisyfir-
litið var númer 17 í ritröðinni
Handbók sveitarfélaga og er fáan-
legt á skrifstofunni og kostar 300
krónur.
Efnisyfirlitið er í þremur köflum.
Fyrst er efninu raðað eftir efnis-
flokkum, í öðrum kafla eftir kaup-
stöðum, sýslum og hreppum og
loks í þriðja kafla eftir höfundum. í
miðkaflanum má þannig sjá, hvaða
efni hefur verið birt frá hverju
sveitarfélagi á sl. fimm árum.
í formála efnisyfirlitsins eftir rit-
stjóra tímaritsins, sem sá um út-
gáfuna, segir m.a. á þessa leið:
,,Margt af efni tímarits eins og
Sveitarstjórnarmála heldur gildi,
þótt nokkur ár líði frá birtingu
þess. Það á til að mynda við um
kynningu á nýjum lögum og reglu-
gerðum. Það á við um leiðbein-
ingar um meðferð hinna ýmsu
256 SVEITARSTJÓRNARMÁL