Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Blaðsíða 18

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Blaðsíða 18
MENNINGARMÁL Fornleifaskráning og fornleifavernd Guðmundur Ólafsson, deildarstjóri fornleifadeildar Þjóðminjasafns íslands Sagt er, aö hver einn bær eigi sína sögu. Því miöur hafa menn sjaldnast gert sér grein fyrir því, aö sú saga geti verið eitthvaö annað og meira en þaö, sem ritað er um bæinn í fornsögunum eða öðrum rituðum heimildum. Sjaldan er hugað að því, að bæjarhólar, byggingaleifar og aðrar fornleifar geyma í jörðu e.t.v. mestu og beztu heimildir um sögu, þróun og mannlíf hvers einasta býlis í landinu. Á undanförnum áratugum hefur fjöldi minja horfið vegna uppblásturs (1. mynd), nýbygginga, vega- gerðar, jarðabóta og annarra verklegra framkvæmda. Stórvirkar vélar sópa burt öllu, sem fyrir verður. Þan- nig getur grunnur aö nýju húsi, sem grafinn er ofan í fornan bæjarhól, í einu vetfangi afmáð margra alda byggðasögu býlisins. Minjar, sem þannig fara, eru að eilífu glataðar, ásamt öllum þeim heimildum, sem þær höfðu að geyma. Þegar skaðinn er orðinn, verö- ur ekki sagt til um, hvort þar hafi farið forgörðum merkilegar minjar. Til skamms tíma hefur verið tekið fremur lítið tillit til minja- og heimildagildis fornleifa í sambandi við skipulag og framkvæmdir. Þessu þarf aö breyta. í jöröu eru varðveittar ómetanlegar menn- ingarsögulegar heimildir, sem óheimilt er aö hrófla viö nema meö leyfi fornleifanefndar. Mikilvæg forsenda fyrir því, að hægt sé að vernda fornleifar landsins, er aö fá glöggt heildaryfirlit yfir, hvers konar minjar eru enn til í landinu, hvar þær eru, gerð þeirra, aldur, minjagildi og fleira. Fornleifaskrán- ing er skilvirkasta aöferðin til þess aö veita þessar upplýsingar og koma í veg fyrir óþarfa eyöileggingu á fornleifum. Ný þjóðminjalög Hinn 1. janúar sl. öðluðust gildi ný þjóðminjalög nr. 88/1989. Nokkur ákvæöi hinna nýju laga snerta sér- staklega sveitarfélögin í landinu. Mikilvægast er, aö friðunarákvæöi hafa verið aukin verulega, þannig að allar fornleifar, 100 ára og eldri, eru nú friðhelgar. Einnig skal vakin athygli á ákvæði 17. gr. laganna um fornleifaskráningu, en þar segir m.a.: „Skytt er, að fomteifaskráning fari fram á skipulagsskyldum svæð- um, áður en gengið er frá skipulagi eða endurskoðun þess." Upphaf skipulegrar fornleifaskróningar Segja má, að skipuleg skráning fornleifa á vegum Þjóðminjasafnsins hefjist ekki fyrr en árið 1980 í Mos- fellshreppi. Reyndar hafði verið hafizt handa um að friðlýsa minjar á fyrri hluta aldarinnar, en þá var að mestu stuðzt viö ritaöar heimildir og lýsingar kunn- ugra á stöðunum. Um skráningu í tengslum við skipuiega vettvangskönnun var sjaldnast að ræða. Þörfin fyrir fornleifaskráningu hefur fariö vaxandi með hverju ári, sem liðið hefur, og er nú svo komiö, að hún er orðin eitt albrýnasta verkefni fornminjavörzl- unnar. Tilgangur 1. Megintilgangur fornleifaskráningar er að afla grunnupplýsinga um staðsetningu, tegund og fjölda fornleifa á hverju svæði. 2. Sérhver rúst á sér sögu og efnahagslegar forsend- ur. Heildarskráning fornleifa er nauðsynleg úttekt á þeim merkilega og lítt kannaða menningararfi, sem fólginn er í jörðu. Fornleifaskráning er því mikilvæg heimild um byggöarsögu og getur m.a. sýnt, hvað dæmigert var fyrir þróun húsagerðar, búskaparhætti og landnýtingu á viökomandi svæði eöa hvaö skilur það frá öörum svæðum í þessum efnum. 1. mynd. Forn bæjarhóll, sem er aö blása upp, þar sem áöur var býliö Merkihvoll í Landmannahreppi. 80
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.