Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Blaðsíða 41
BÆKUR OG RIT
Tólfta fræðslurit
sambandsins
Nýlega kom út tólfta ritið í röð
fræðslurita sambandsins, Fráveitur
og sorp. í því eru birt framsöguer-
indi, sem flutt voru á ráðstefnu um
samnefnt efni, sem haldin var í
Borgartúni 6 í Reykjavík 15. og 16.
nóvember 1990, en hana héldu
sambandið, Hollustuvernd ríkisins
og Lagnafélag íslands í samvinnu
við Samtök tæknimanna sveitarfé-
laga (SATS) og umhverfisráðu-
neytið.
I ritinu eru birtar undirstöðu-
greinar um þá þætti umhverfismál-
anna, sem sveitarfélögin hafa með
höndum. Fremst eru ágrip af fram-
söguerindunum, setningarræða
Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, for-
manns sambandsins, og ávarp
Júlíusar Sólnes, þáv. umhverfis-
ráðherra. Ingi U. Magnússon,
gatnamálastjóri, og Siguröur
Skarphéðinsson, aðstoðargatna-
málastjóri í Reykjavík, eiga erindi
um ástand og framtíöarlausn frá-
veitumála f höfuöborginni, og
Þórður Þ. Þorbjarnarson, borgar-
verkfræðingur, skrifar um stefnu-
mörkun í meðhöndlun sorps og
skólps á höfuðborgarsvæðinu. Jó-
hann Bergmann, bæjarverkfræð-
ingur f Keflavík, á erindi um frá-
rennslismál utan höfuðborgar-
svæðisins og Jón H. Ásbjörnsson,
bæjartæknifræöingur í Mosfells-
bæ, framsögu um rotþrær. Þá er
erindi Ólafs Péturssonar, forstöðu-
manns mengunarvarnadeildar
Hollustuverndar ríkisins, um nýju
mengunarvarnareglugerðina og
kröfur hennar um fráveitur og sorp,
og erindi Hilmars Sigurðssonar,
verkfræöings hjá Verkfræðistof-
unni Hnit hf., um hönnun fráveitu-
kerfa með hliðsjón af nýju meng-
unarvarnareglugerðinni. Birgir
Þórðarson, umhverfisskipulags-
fræðingur hjá Hollustuvernd ríkis-
ins, ræðir sorphirðu- og endur-
vinnslumál, og Pétur K. Maack,
prófessor og formaður sorp- og
endurvinnslunefndar, gerir grein
fyrir tillögum nefndarinnar. Birt eru
erindi Einars B. Pálssonar, pró-
Fráveitur
og sorp
Sjmh.ind islcnskrj steilarfélaga
12. rr.oV.luhl IWI
fessors, um orðasafn um fráveitur
og erindi Kristjáns Ottóssonar,
framkvæmdastjóra Lagnafélags
íslands, sem kynnti áform um sér-
staka lagnadeild á Rannsókna-
stofnun byggingariðnaðarins. Þá
eru birt framsöguerindi tveggja er-
lendra fyrirlesara, en þau voru
Lars-Eric Janson, prófessor í Sví-
þjóð, sem talaöi um hreinsun
skólps og útrásir, og Claudia
Jonas frá fyrirtækinu WEDECO í
Þýzkalandi, sem talaöi um
gerileyðingu skólps með útfjólu-
blárri geislun. Loks er birt erindi
Sigurbjargar Sæmundsdóttur,
deildarsérfræðings f mengunar-
vörnum hjá umhverfisráðuneytinu,
sem kynnti hlutverk ráöuneytisins
á sviði fráveitu- og sorpmála. Aftan
við erindin eru birtar niðurstöður
umræðuhópa, sem störfuðu á ráð-
stefnunni. Þeir voru þrír, og fjallaöi
einn þeirra um fráveitur, annar um
sorphirðu og sorpeyðingu og sá
þriðji um fjármögnun meiriháttar
umbóta í sorp- og fráveitumálum.
Ritið er 136 bls. að stærö og
prentað í A5 broti eins og hin fyrri
fræðslurit. Það fæst á skrifstofu
sambandsins og kostar 1.000
krónur eintakið.
ENDINGARGÓÐAR OG MEÐFÆRILEGAR
SORPTUNNUR
fyrir heimili og fyrirtæki
i i«
Þú getur valið úr ýmsum litum, sem til
dæmis auðveldar flokkun úrgangs.
Viðurkennd þýzk gæðavara!
Atlas
Borgartúni 24
s: 62 11 55
103