Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Blaðsíða 43

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Blaðsíða 43
HEILBRIGÐISMÁL Nýja heilbrigðisreglugerðin nr. 49/1990 og gildistaka bráðabirgðaákvæða hennar Halldór Runólfsson, deildardýralæknir Hollustuvernd ríkisins Hinn 13. ágúst 1985 skipaöi þáverandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Matthías Bjarnason, nefnd til þess aö endurskoöa heilbrigðisreglu- gerð nr. 45/1972. í nefndinni áttu sæti Halldór Runólfsson, deildar- dýralæknir, Hollustuvernd ríkisins, sem var formaður nefndarinnar, Björn Friðfinnsson, þáv. formaður sambandsins, tilnefndur af stjórn þess, og Einar Ingi Sigurðsson, heilbrigðisfulltrúi og framkvæmda- stjóri Heilbrigðiseftirlits Kópavogs- svæðis, sem tilnefndur var af Heil- brigðisfulltrúafélagi Islands. Ritari nefndarinnar var Kolbrún Haralds- dóttir, heilbrigðisráðunautur, Holl- ustuvernd ríkisins. í upphafi starfs nefndarinnar lágu fyrir ýmis gögn, svo sem til- lögur að nýrri heilbrigðisreglugerð frá Jóni Sigurðssyni, fyrrv. borgar- lækni, og frumendurskoðun reglu- gerðarinnar, sem Ingimar Sigurðs- son, lögfræðingur, hafði gert. Einnig kallaði nefndin í upphafi eftir víðtækum upplýsingum frá innlendum og erlendum aðilum. Drögin voru send heilbrigðisfull- trúum og stjórn og sviðum Holl- ustuverndar rlkisins. Einnig voru nokkrir kaflar sendir til umsagnar ýmsum, sem höfðu sérþekkingu á viðkomandi málum. Margar gagnlegar umsagnir bárust, og einnig veitti Þórhallur Halldórsson, forstöðumaður heil- brigðiseftirlitssviðs Hollustuvernd- ar ríkisins, nefndinni mikilvægar ábendingar við vinnslu draganna. Starfsmenn rannsóknarstofu Holl- ustuverndar ríkisins geröu tillögur um viðmiðunarmörk og fleiri atriði varðandi neyzluvatn og baðvatn. Þóroddur Th. Sigurðsson, vatnsveitustjóri í Reykjavík, lagöi einnig fram gagnlegar tillögur varðandi III. kafla reglugerðarinn- ar, sem fjallar um vatnsveitur, vatnsból og verndarsvæði þeirra, brunna og sjó. Hinn 30. október 1989 sendi nefndin Guðmundi Bjarnasyni, þáv. heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra, lokadrög að endur- skoðaðri heilbrigöisreglugerð, sem síðan var sett hinn 23. febrúar 1990. Gildistaka og bróðabirgðaókvæði Reglugerðin öðlaðist gildi þegar við undirskrift að undanteknum nokkrum greinum, sem teknar eru fram í lok reglugerðarinnar sem ákvæði til bráðabirgða, og er rétt að vekja sérstaka athygli á efni þessara greina og gildistöku. 1. Ákvæði greina 23.2.1, 23.2.2, 23.2.3 og 23.2.4 öðlast gildi 1. janúar 1992. Þessar greinar fjalla um verndarsvæði vatns- bóla, og gert er ráð fyrir, að umhverfis öll vatnsból séu skil- greind brunnsvæöi, grann- svæði og fjarsvæði til þess að koma í veg fyrir mengun neyzluvatns. 2. Ákvæði greinar 35.2.2 skulu einnig taka gildi 1. janúar 1992. Þessi grein fjallar um fjölda sal- erna í almennum veitinga- og samkomuhúsum, og gefinn var aðlögunartími fyrir þessa staði til að uppfylla auknar kröfur á þessu sviði. 3. Ákvæði greinar 45.2 skal taka gildi 1. janúar 1993. Greinin fjallar um, að móttökustöðvar fyrir sorp skuli vera í a.m.k. 500 metra fjarlægð frá mannabú- stöðum og matvælafram- leiöslustöðum, og æskilegt var talið að veita þeim aðilum, sem á þyrftu að halda, frest til að uppfylla þetta skilyrði. 4. Ákvæði greinar 82.16.1 skal taka gildi 1. janúar 1992. Þetta ákvæöi gerir kröfur um, að allur fiskur, sem seldur er í búðum, skuli hafa verið lifandi blóðgað- ur og slægður. 5. Ákvæði greinar 82.20 skal taka gildi 1. janúar 1992 og fjallar um, að fiskhjallar til þurrkunar á fiski megi ekki vera nær íbúð- arhúsum en 500 metra. 6. Ákvæöi greinar 84.13.1 skal taka gildi 1. janúar 1993. Þessi grein gerir kröfu til, að hitastig í vinnslusölum, þar sem fram fer skuröur, úrbeining og pökkun á kjöti, skuli ekki vera hærra en 12°C. Þessi krafa hefur verið í gildi í reglum Evrópubanda- lagsins um árabil og er talin nauðsynleg til að auka gæði og heilnæmi þeirra kjötvara, sem verið er að vinna. 7. Ákvæði greina 87.3.1 og 87.3.2 taka gildi 1. janúar 1992, en þau fjalla um flutning viö- kvæmra matvæla með bifreiö- um. Eftir gildistöku skal flutn- ingarými bifreiða vera gluggalaust og aðskilið frá rými bifreiðarstjóra og þannig um 105
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.