Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Page 19
MENNINGARMÁL
3. Fornleifaskráning er nauðsynleg vegna skipulags-
vinnu og hvers konar framkvæmda og getur komið
í veg fyrir, að merkilegar minjar séu eyðilagðar af
slysni eða þekkingarskorti.
4. Friðlýsing fornleifa verður að grundvallast á fag-
legu mati og úrvali minja í hverju sveitarfélagi fyrir
sig.
5. Fornleifaskrá gefur ótal möguleika til hvers konar
samanburðarrannsókna á sviði menningarsögu og
byggðarþróunar.
Skráningarstarfib
Fornleifaskráning skiptist í þrjá verkþætti:
1. Forvinnu, sem felst í söfnun ritaðra heimilda um
minjar, að senda út spurningaskrár og afla stað-
kunnugra heimildarmanna.
2. Vettvangsrannsókn, sem er hin eiginlega skrán-
ing. Hún fer þannig fram, að skrásetjari fer skipu-
lega um viðkomandi svæði og skráir hverja rúst í
skráningarbók, gefur henni númer í heildarskrán-
ingarkerfi og gerir af henni lauslegan uppdrátt. í
skráningarbók eru einnig færðar aðrar upplýsing-
ar, svo sem lega í landslagi, staðhættir, tegund,
ástand og minjagildi minjar. Skrifuð er lýsing á
rústinni, greint frá munnmælum eöa sögum, sem
tengjast henni (ef einhverjar eru) og heimildar-
mönnum að þeim (2. mynd). Skráðar minjar eru
merktar inn á loftmyndir eða nákvæmustu fáanleg
kort af viðkomandi svæði.
3. Úrvinnslu. Að lokinni vettvangsrannsókn þarf að
vinna úr gögnum, sem safnað hefur verið, og
koma þeim á framfæri í fjölritaöri fornleifaskrá. Því
miður hefur enn ekki verið hægt að ganga frá slíkri
úrvinnslu á fullnægjandi hátt vegna fjárskorts.
Flokkun minja
Einfalt flokkunarkerfi hefur verið notað til þess aö
flokka minjar eftir áætluðum aldri og minjagildi. Þær
eru fyrst flokkaðar á staðnum. Ræöst flokkunin af
mati skrásetjara, t.d. á ástandi og áætluðum aldri. í
úrvinnslu er flokkunin endurmetin með tilliti til heildar-
innar.
Minjum er skipt í þrjá aðalflokka eftir metnu minja-
gildi (A-C) og fjóra undirflokka eftir áætluðum aldri
þeirra (1-4).
A-flokkur er sá, sem mest minjagildi hefur, og ber
að reyna að varöveita þær minjar, sem þangað flokk-
ast.
B-flokkur. I þann flokk fara t.d. minjar, sem lítiö er
vitaö um, en eru forvitnilegar og slæmt væri að glata,
án þess að frekari könnun væri gerð fyrst.
C-flokkur. Hér flokkast minjar, sem ekki hafa neitt
sérstakt minjagildi.
Aldur skráðra minja er lauslega áætlaður og þan-
nig reynt að greina á milli þess, hvort um er að ræða
minjar frá heiðni, fyrir eða eftir siðaskipti eða frá 19.
öld og síöar. Tölustafur er látinn tákna viðkomandi
tímabil:
1 táknar tímabilið
2 táknar tímabilið
3 táknar tímabilið
4 táknar tímabilið
870-1000.
1000-1550.
1550-1800.
1800 og yngra.
B2 táknar þannig rúst, sem gæti verið frá miðöldum
og þyrfti að kanna betur. (3. mynd)
Skráningarstarfið er mjög misjafnt að umfangi. Fer
þaö eftir aöstæðum á hverjum stað, svo sem stærð
sveitarfélags, dreifingu og fjölda minja og hve að-
gengilegar þær eru. Góðir heimildarmenn flýta mjög
fyrir og eru mjög mikilvægir. Gera má ráð fyrir, að
undirbúningsvinna taki 1-2 mánuði og úrvinnsla þrjá
mánuði. Þar að auki má reikna með, aö vett-
vangskönnun taki 2 fornleifafræðinga um tvo til fjóra
mánuði, þannig að um er að ræða frá 6-12 mánaða
vinnu fyrir hvert sveitarfélag eftir atvikum.
3. mynd. „Blóthúsrúst" í landi Þyrits, Hvalfirði. Dæmi um kort
byggt á fornieifaskráningu eins manns. Mæiing og teikning:
Guðmundur Ólafsson.
81