Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Page 22

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Page 22
SKJALAVARZLA ákvæöi um aögang opinberra aö- ila aö gögnum til eftirlits, svo sem aögang skattstjóra. Á hinn bóginn er mjög sjaldan minnzt á geymslutíma skjala. Þetta kemur t.d. fram í lögum um tekju- og eignarskatt nr. 75 frá 1981. Þar er tekið mjög skýrt fram, hverjir hafi aögang aö hvaöa gögnum fyrir- tækja, en hins vegar er hvergi minnzt á, í hversu langan tíma þessi gögn þurfi aö vera fyrir hendi til eftirlits. Þetta gæti komið til af því, aö þaö er fyrst á síöustu árum, sem fariö er að íhuga skipulagða stjórnún og grisjun skjala. Þaö var varla hugsað um þessi mál áöur fyrr, enda pappírsframleiöslan þá minni. Þaö var taliö sjálfsagt aö geyma öll skjöl, hvaöa nafni sem þau nefndust, þangað til ... einn góðan veöurdag var geymslan í kjallaranum eöa á háaloftinu orðin full og nauösynlegt aö gera vor- hreingerningu og fleygja einhverju af þessu „gamla drasli" burt. Til- tektirnar vildu oft veröa anzi tilvilj- anakenndar, og mörg mikilsverð skjöl fóru stundum forgörðum. Á þeim upplýsingatímum, sem viö nú lifum á, er á hinn bóginn oröið mikilvægara aö skipuleggja geymslu skjala og gagna og eyöa þeim skjölum, sem ekki er talin þörf fyrir og teljast ekki hafa sagn- fræðilegt gildi. Því hefur nú aukizt á undanförnum árum, að sett séu í lög og reglugeröir ákvæöi um lögbundinn geymslutíma ákveö- inna skjalategunda. Þessi geymslutími er yfirleitt sá sami og kemur fram í bókhaldslögunum. Skilningur löggjafans er því greini- lega farinn aö aukast á þessum málum. Dæmi um slíkt er t.d. í reglugerö um launabókhald í staögrelöslu nr. 539 frá 1987. Þar kemur fram [ 5. grein, aö staögreiðslulaunabækur ásamt fylgjskjölum skuli varöveita í sjö ár, frá því aö bækurnar, reikningarnir og yfirlitin voru síöast færö. Þetta er samhljóöa ákvæö- um í bókhaldslögunum, en samt gott, aö þetta skuli vera ítrekaö í nýjum lögum og reglugerðum. Einna ítarlegast er fjallað um Renniskápar í geymslum Borgarskjala- safns. geymslutíma skjala í bókhaldslög- unum frá 1968 og í reglugerð um bókhald frá 1982. Bókhaldslögin Þau lög, sem oftast er stuözt við [ sambandi viö geymslutíma, eru lög um bókhald nr. 51 frá 1968, og eru þau helztu lögin um þetta efni. Segja má, aö bókhaldslögin séu nokkuö skýr og ótvíræö. í þeim er fjallaö vandlega um, hvers konar bækur og blöö sé leyfilegt aö nota í bókhaldi og hvernig skuli gengiö frá þeim og fært inn, til þess aö þetta sé allt saman löglegt. í lögunum er fjallaö allítarlega um, hvaða bókhaldsbækur er skylt aö færa og hvaða reikninga beri aö færa, þannig aö rekja megi viö- skipti og notkun fjármuna. Einnig er fjallað um uppgjör og frágang á því. Hins vegar hafa þessi bók- haldslög ekki eingöngu aö geyma reglur varöandi bókhaldsgögn, heldur einnig um margar aörar skjalageröir fyrirtækja og stofnana. í 15. grein laganna segir m.a.: „Enn fremur er hverjum bók- haldsskyldum aðila skylt aö geyma í skipulegri röð öll bréf og sím- skeyti, er honum berst viðkomandi atvinnu hans, og enn fremur að halda eftir samriti af öllum þeim bréfum og símskeytum, er hann ritar og sendir öörum viðkomandi atvinnunni, og geyma eftir sömu reglum. “ Síðan koma beint í framhaldi af þessu, ( 16. grein, nákvæmar reglur um geyfnslutíma þessara gagna. Þar segir: „Allar þær bækur, sem fyrirskip- aöar eru í lögum þessum, ásamt fylgiskjölum, svo og bréf þau og símskeyti, samrit bréfa og sím- skeyta, sem um ræöir í næstu grein hér á undan, skulu geymd í 7 ár frá því síöast er ritaö í bækurnar og bréfin eöa símskeytin móttekin eöa send. Ráöherra getur meö reglugerð heimilað, aö geymsla á filmu eða annarri jafngóðri eftirmynd viö- komandi bókar eöa skjals komi aö nokkru eöa öllu leyti í staö geymslu bókarinnar sjálfrar eöa skjalsins. Samanlagður geymslutfmi frum- gagna og eftirmyndar má aldrei vera skemmri en 7 ár. Efnahagsbók skal ætíö varöveita í 25 ár. “ Samkvæmt íslenzkum lögum virðist því vera nauðsynlegt aö geyma flest gögn fyrirtækja í a.m.k. sjö ár, nema efnahagsbók á aö geymast ( minnst 25 ár. Þetta myndi þýöa, aö gögn frá árinu 1991 yröi aö geyma a.m.k. til árs- ins 1999. Athyglisvert er, aö heimilaö skuli vera aö geyma þessi gögn á filmu í staö þeirra sjálfra. 84

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.