Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Page 24

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Page 24
SKJALAVARZLA næöi, þar sem skráning fer fram eöa þar sem skráningargögn eru varöveitt eöa þau eru tii vinnslu. Tölvunefnd getur lagt fyrir aöila aö hætta skráningu eöa láta ekki öör- um í té upplýsingar úr skrám sín- um eöa gögnum, enda gangi skráningin eöa upplýsingagjöf í berhögg viö ákvæði laga þessara að mati tölvunefndar. Þá getur tölvunefnd og, aö sömu skilyröum fullnægöum, mælt svo fyrir, aö upplýsingar í skrám veröi afmáðar eöa skrár í heild sinni eyðilagöar. (33. gr.) Eins og sést á þessu, er þaö tölvunefnd, sem ræöur miklu um geymslu og eyöingu tölvugagna. Því er hægt aö ráðleggja þeim, sem eru í einhverjum vafa um þessi mál, aö hafa samband viö nefndina og fá leiðbeiningar frá henni. Lög um Þjóöskjalasafn íslands Áriö 1985 voru sett ný lög um Þjóðskjalasafn nr. 66/1985, sem eru mun ítarlegri en fyrri lög og gera ráö fyrir því sem virkari aðila I skjalamálum landsins. f lögunum er skilgreint hlutverk safnsins, en þaö er „söfnun og varðveisla skjala og annarra skráðra heimilda þjóðarsögunnar til notkunar fyrir stjórnvöld, stofn- anir og einstaklinga til þess að tryggja hagsmuni og réttindi þeirra og til notkunar við vísindalegar rannsóknir og fræðiiðkanir" (3.gr.) Skjöl eru einnig skilgreind í lög- unum: „Þegar talaö er um skjöl og skráðar heimildir í lögum þessum er átt við hvers konar gögn, jafnt rituö sem í öðru formi, er hafa að geyma upplýsingar og oröið hafa til við starfsemi á vegum stofnunar eða einstaklings hvort sem um er að ræða skrifleg gögn, uppdrætti, Ijósmyndir, filmur, örglærur, hljóð- upptökur, gataspjöld, segulbönd eða önnur hliðstæð gögn.“ (3. gr.) Hlutverki Þjóöskjalasafns er vandlega lýst í 4. gr. laganna, en þaö er m.a. aö heimta inn og varöveita skjöl þeirra aðila, sem eru afhendingarskyldir, að líta eftir skjalasöfnum afhendingarskyldra aðila, láta þeim I té ráðgjöf, gefa út leiðbeiningar um skjalavörzlu og tölvuskráningu og ákveöa ónýt- ingu skjala, sem ekki er talin ástæöa til aö varðveita til fram- búöar, aö gangast fyrir fræðslu um skjalavörzlu fyrir fólk, sem á að annast skjalavörzlu í opinberum stofnunum, og aö koma upp handbókasafni um skjalfræðileg og sagnfræðileg efni, svo eitthvaö sé nefnt. Vissum aöilum ber aö afhenda skjöl sín Þjóðskjalasafni til varö- veizlu, svo sem embætti forseta íslands, Alþingi, Hæstarétti, Stjórnarráöinu og þeim stofnunum, sem undir þaö heyra, svo og öör- um stofnunum ríkisins, fyrirtækjum f eigu ríkisins, félagasamtökum, sem fá meirihluta rekstrarfjár síns Ester G. Westlund annast inntærstur og upprööun á skjölum byggingarnefndar Reykjavikur, en þau eru varðveitt á Borgarskjalasafni. Svanhildur Bogadóttir tók myndirnar, sem með greininni birtast. meö framlagi á fjárlögum, og fé- lögum, sem njóta verulega styrks of opinberu fé. í lögunum er einnig fjallaö um héraðsskjalasöfn sveitarfélag- anna. Um þau segir m.a.: „Þar sem héraðsskjalasöfn starfa skulu renna til þeirra skjöl sýslunefnda, bæjarstjórna, hreppsnefnda og hreppstjóra á safnsvæöinu. Þangað skulu einnig renna embættisskjöl allra stofnana og starfsmanna á vegum þessara aðila, skjöl félaga og samtaka, sem njóta verulega styrks af opinberu fé og starfa eingöngu innan um- dæmis héraðsskjalasafnsins. “ (14. gr.) Ef sveitarfélög eru ekki aðilar aö héraðsskjalasöfnum, ber þeim aö afhenda skjöl sín Þjóöskjalasafni. Safninu er líka heimilt aö taka viö gögnum annarra en afhendingar- skyldra aðila, svo sem skjölum einkafyrirtækja og einstaklinga. í lögunum engert ráö fyrir, að skilaskyld skjöl skuli aö jafnaði ekki afhenda Þjóöskjalasafni síöar en þegar þau hafa náö þrjátíu ára aldri. Þar kemur einnig fram, aö af- hendingarskyldum aðilum er óheimilt aö ónýta nokkurt skjal í skjalasöfnum sínum nema meö heimild Þjóöskjalasafns eöa sam- kvæmt sérstökum reglum, sem settar veröa um ónýtingu skjala. Forstööumenn skilaskyldra stofn- ana bera ábyrgö á skjalavörzlu stofnananna, og eru afhendingar- skyldir aöilar skyldugir aö hllta fyr- irmælum Þjóöskjalasafns um skráningu, flokkun og frágang skjala. Llklega mun þetta veröa skilgreint nánar I reglugerö síðar. Ný skjalavistunarkerfi og skjala- geymslur afhendingarskyldra aöila skulu samþykkt af Þjóðskjalasafni, áður en þau eru tekin I notkun. Lögin eru mjög skýr I sambandi við afhendingarskylda aöila, en ef til vill vantar skýrari ákvæöi varö- andi aöra aöila og aö þaö sé Ijóst, aö hve miklu leyti Þjóöskjalasafniö stjórni og stýri skjalamálum I land- inu og setji reglur þar um. Eflaust veröur bætt úr þessu seinna meö reglugerö um Þjóðskjalasafnið. 86

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.