Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Page 35

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Page 35
SAMTAL Ráöhús hreppsins á miöri mynd. Á efri hæö þess eru skrifstofur hreppsins og bókasafn, en á götuhæö slökkvistöö og áhaldahús. Ljósm. Nanna Magnúsdóttir. Séö af bryggju til suöurs. Götumynd frá Þingeyri. Myndin er tekin til vesturs eftir Aöalstræti. - Hafið þið girt af mikið land? „Á síðasta ári lét hreppurinn girða af mikið land meö 7 km langri girðingu umhverfis Sandafellið. Meö því fengum við stórt land til trjáræktar og útivistar. Þorps- búar tóku almennt vel við sér og gróðursettu þar í stórum stíl undirforustu Skógræktarfélags Dýrafjarðar. Var það gert í nafni landgræðsluátaksins á því ári. Árlega er einnig gróðursett í þorpinu, bæði í hlíðinni ofan viö byggðina og við heimahús." - Hverjir mega vera að þessu? „Þeir eru margir. Fólk kemur saman á kvöldin og um helgar. Annars væri ekki hægt að gera þetta, nema með sameiginlegu átaki. Einnig starfar vinnuflokkur hreppsins að þessum málum, eins og að umhverfis- málum almennt." - Ég á viö, hvort ekki sé sífellt mikil vinna við fisk- vinnsluna? „Jú, það er alltaf stöðug vinna í fiskvinnslunni árið um kring. Á henni byggist líka tilvera okkar. Hlutafé- lagið Fáfnir hf. rekur fiskvinnsluna, en Kaupfélag Dýr- firöinga er stærsti hluthafinn í því. Fyrirtækið á og rekur tvo togara, Framnes og Sléttanes, en einnig eru geröir út margir smærri bátar á línu, handfæri og skel." - í eina tíð var gert út á lúðu frá Þingeyri? „Á síðustu öld geröu Ameríkumenn út á lúðu frá Þingeyri og reistu hús undir starfsemi sína. Þeir voru frá bænum Gloucester á austurströndinni og voru hér viðloðandi rúmlega áratug, milli áranna 1884 og 1895. Þeir komu á 70 til 90 tonna skonnortum, og hver haföi um borö svokallaðar doríur, smákænur, sem tveir há- setar voru á. Þeir veiddu lúöuna og komu henni um borð í móðurskipið, þar sem aflinn var flakaöur og saltaður. Flestar munu skonnorturnar hafa orðiö á ár- unum 1892 og 1893, 13-14 skip hvort sumar, og á 97

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.