Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Side 37

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Side 37
SAMTAL um stærra svæðis. Sama á við um fleiri stofnanir, sem fyrir eru, og ekki sízt þær, sem eiga eftir að koma." - Hver eru helztu verkefni hreppsins nú? „Viö sjáum um rekstur hinna ýmsu þjónustustofn- ana, ýmist einir eða í samvinnu viö ríkið, svo sem elli- heimilis, heilsugæzlustöðvar og dagvistar barna. Hreppurinn annast heimaþjónustu við aldraða, rekur grunnskóla á tveimur stöðum, á Þingeyri og í Mjólká í Arnarfirði, og tónlistarskóla á Þingeyri. Þá rekur hreppurinn hafnarmannvirki og margt fleira, sem tengist þjónustu við ibúana." - Hverjar eru helztu-framkvæmdir hreppsins? „Á síðasta ári var lokið við smíði níu félagslegra íbúða í sambýlishúsi, elliheimili er orðið fokhelt. Undir- búningur er hafinn að byggingu sundlaugar og íþróttahúss. Ennfremur eru stórframkvæmdir framundan við vatnsöflun. Stöðug verkefni eru fyrir- sjáanleg við bætta hafnaraðstöðu, gatnagerð og allt þaö, sem því fylgir, eftir því sem byggðin vex.“ - Áttu von á, aö fólki fjölgi í hreppnum? „Já, ég á ekki von á öðru. íbúatala hreppsins hinn 1. desember 1990 var 487 og hefur veriö svipuö um árabil. Þingeyrarhreppur er fjórða fjölmennasta sveit- arfélagið á Vestfjörðum, næst á eftir ísafirði, Bolung- arvík og Patrekshreppi. Á staðnum skortir húsnæöi. Árlega þyrfti að byggja nokkrar íbúðir til þess að full- nægja þörfinni." - Hvernig er búið að unga fólkinu að því er varðar íþróttir og félagsstörf? „Ég held, að þeim þætti sé sinnt bara nokkuö vel. Öll sumur er kennari með börnunum í íþrótta- og leikjastarfi, og unglingavinna er á hverju sumri. Þá 99

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.