Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Side 54
SAMGÖNGUMÁL
með tilkomu betri vega. Göng
undir Hvalfjörð myndu væntanlega
kippa þeim erfiða rekstrargrund-
velli, sem nú er, alveg undan fyrir-
tækinu. Spurt hefur verið: Fækkar
þetta ekki störfum á Akranesi?
Hvað Skallagrím hf. varöar, þá
verður svo, en það er ein af meg-
inforsendum ganganna, að þau
muni sem slík leiða til þess, að
auðveldara verði að skapa ný at-
vinnufyrirtæki og að þau atvinnu-
tækifæri muni vega upp og vel það
þau störf, sem falla niður með því,
að Akraborg verður aflögö.
Á það hefur verið bent, að jarö-
göng muni leiða til þess, að verzl-
un og þjónusta muni í auknum
mæli flytjast til Reykjavíkur. Þessi
hætta er fyrir hendi, ef ekkert er að
gert. Á Akranesi er fjölbreytt verzl-
un og þjónusta á mjög góðu verði
miðað við höfuðborgarsvæðið.
íbúar hafa ekki þurft aö sækjast
eftir vörum eða þjónustu utan
Akraness vegna verðlags heima
fyrir, og ef svo verður áfram, er ótti
um tilflutning í þessu efni ástæöu-
laus. Fremur ætti að vera bjartsýni
um, að aukinni umferð og atvinnu
fylgi meiri umsvif í verzlun og
þjónustu.
Loks hefur verið bent á, að
verzlun og þjónusta í Hvalfjarðar-
strandarhreppi verði fyrir skakka-
föllum með tilkomu ganga. Sem
hlutfall af þeim heildarhagsmun-
um, sem um er að ræða, þá eru
verzlanir að Ferstiklu, í olíustöðinni
og í Botni ákaflega litlar stærðir.
Áhyggjur sveitarstjórnarmanna f
hreppnum eru þó skiljanlegar,
hvað þetta varðar, en ætla má
samt sem áöur, að nýir möguleikar
á sviði atvinnu- og ferðamála opn-
ist á Hvalfjarðarströnd meö tilkomu
Hvalfjarðarganga, og það vegur
vafalaust fyllilega upp það, sem
tapast. í raun er í Hvalfjaröar-
strandarhreppi um sama vanda-
mál aö ræða og eigendur Hvítár-
vallaskála stóðu frammi fyrir, þegar
Borgarfjarðarbrúin var tekin í notk-
un, en nú veltir enginn vöngum yfir,
hvorn kostinn menn hefðu viljað.
Fyrir þá, sem hafa þá trú, að
Hvalfjarðargöng muni leiða til já-
kvæðrar þróunar, er nauðsynlegt
að skoða þá neikvæðu gagnrýni,
sem fyrir hendi er, því ef menn
telja, að sú jákvæða þróun, sem
eftir er sótzt, verði af sjálfu sér, þá
eru þeir hinir sömu á villigötum.
Athafnaleysi í kjölfar Hvalfjaröar-
ganga mun gera neikvæðu þætt-
ina stærri en nauðsyn krefur og
draga úr jákvæöri joróun. Skyn-
samlegar aðgerðir og markvissar
munu hins vegar leiða til þess, að
jákvæð þróun mun verða, eins og
að er stefnt, en neikvæð áhrif
hverfandi.
VI. LOKAORÐ
Hvalfjarðargöng hafa mikið verið
til umræðu á liðnum árum, og nú
hillir undir, að gerð þeirra geti orðið
að raunveruleika. Umfjöllun um
göngin hefur m.a. mótazt af því, að
um arðsama framkvæmd er að
tefla, bæði þjóðhagslega og fjár-
hagslega. Hvalfjarðargöng leiða til
um 47-61 km styttingar vega-
lengda milli Akraness og Borgar-
ness annars vegar og Reykjavíkur
hins vegar. Með þeim tæknilegu
framförum, sem orðiö hafa á liðn-
um árum í gerð jarðganga, eru
framangreind atriöi veigamikill
hvati framkvæmda, en áherzlu
verður þó aö leggja á, að nú er
undirbúningur, fjármögnun, fram-
kvæmdir og rekstur Hvalfjarðar-
ganga áhættufyrirtæki, sem er þó
þaö álitlegt, að sveitarfélög og fyr-
irtæki telja áhættunnar virði að
leggja fram á þessu stigi verulegt
fé í undirbúning. Þess verður von-
andi ekki langt að bíða, að draum-
urinn um Hvalfjarðargöng verði aö
veruleika og að göngin leiði af sér
þau jákvæðu áhrif, sem spáð er
um og eftir er sótzt.
GIST'HE'ív/i,^
Ásgarður er friðsælt og vandað gistiheimili með gistingu á sanngjörnu verði.
Góð aðstaða er fyrir dvalargesti og í næsta nágrenni ýmsir möguleikar til
heilsuræktar, ferðalaga og skemmtana.
I tengslum við útskurðarverkstæði og listmunagallerí Ásgarðs eru boðin list-
og handmenntanámskeið í ágúst og september. Meðal kennslugreina er út-
skurður, smíði, myndmótun, fatasaumurauk blandaðra handavinnunámskeiöa,
sem ætluð eru eldri borgurum.
Hveramörk 4
810 Hveragerði
Tel. 98-34367
Fax. 98-34467
116