Sveitarstjórnarmál - 01.03.1999, Side 46
SKIPULAGSMÁL
við opnanlegan glugga 70/55. Talan
70/55 merkir að viðmiðunarkrafa
um 55 dB(A) utan við opnanlegan
glugga skal vera uppfyllt fyrir
a.rn.k. helming íveruherbergja í
hverri íbúð. Annars er leyfilegt
hljóðstig utan við opnanlega glugga
allt að 70 dB(A).
Innanhúss er almenna krafan sú í
mengunarvarnareglugerðinni að
hljóðstig fari ekki yfir 30 dB. I
dönsku byggingarreglugerðinni frá
1995 er þetta skilgreint nánar
þannig að hljóðstig í „íveruherbergj-
um“ íbúða, hótela og dvalarheimila
má ekki fara yfir 30 dB. Iveruher-
bergi er skilgreint sem stofa og
svefnherbergi. Eldhús er t.d. ekki
íveruherbergi í framangreindri skil-
greiningu.
Reiknilíkan viö mat á um-
feröarhávaða
Við mat á hljóðvist skal nota svo-
kallaðar „Samnorrænar reiknireglur
fyrir umferðarhávaða“. A vegum
Norrræna ráðherraráðsins hefur í
mörg ár verið starfandi nefnd sér-
fræðinga frá öllum Norðurlöndun-
um sem hefur unnið að samræm-
ingu og sett fram þær reiknireglur
sem nota skal til þess að reikna um-
ferðarhávaða.
í „samnorræna reiknilíkaninu"
fyrir umferðarhávaða er tekið tillit
til þátta sem hafa mest áhrif á hljóð-
stig.
Þeirra helstir eru:
1. Umferðarmagn, bílar á sólar-
hring, ÁDU (ársdagsumferð).
Umferðarhávaði vex um 3 dB ef
umferðarmagn tvöfaldast.
2. Umferðarhraði, km/klst. Um-
ferðarhávaði vex með meiri
hraða.
3. Hlutfall þungra bíla í heildar-
umferðinni. Meiri hávaði er frá
þungurn bílum en léttum bílum.
4. Fjarlægð frá umferð til athug-
unarstaöar. Við tvöföldun á
fjarlægð frá athugunarstað til
umferðar lækkar hljóðstig um 3
dB.
5. Hús og mannvirki. íbúðabyggð
hefur áhrif á dreifingu hljóðs og
skýlir landi Qær umferðinni.
6. Langhalli vegar. Meiri hávaði
er frá bílum í brekkum en á flat-
lendi.
7. Land og umhverfi. Hæðir og
hólar og lögun lands hefur áhrif á
útbreiðslu umferðarhávaða.
Mjög mikilvægt er því að nota
landlíkan við mat á umferðar-
hávaða í einstökum punktum
þannig að tekið sé tillit til lögun-
ar lands og áhrifa þess á út-
breiðslu hljóðs. Hljóðmanir og
mannvirki hafa til dæmis veruleg
áhrif á útbreiðslu hljóðs.
8. Yfirborð lands. Yfírborð lands
hefur áhrif á útbreiðslu hljóðs.
Yfirborðið er flokkað í mjúkt
land eins og gras og skóglendi,
eða harða fleti eins og vegi, bíla-
stæði og vötn. Meiri dempun er á
hljóði sem berst yfir „mjúkt“
land en yfir „hart“ land.
Forsendur við útreikninga í „sam-
norræna reiknilíkaninu“:
1. Vegyfirborð. Dekkja- og veg-
hljóð myndast við að dekkið titr-
ar við snertingu við veginn. Loft-
dæling við dekk verður þar sem
dekkið þrýstir lofti út til hliðar
framan á dekkinu, en loft sogast
inn undir dekkið að aftanverðu.
Hrjúft yfirborð skapar meiri um-
ferðarhávaða þar sem titringur
verður meiri á dekkinu. Gropið
vegyfirborð (drenasfalt) veldur
minni umferðarhávaða, þar sem
loftdæling er minni. Sveigjanlegt
vegyfirborð veldur minni um-
ferðarhávaða, þar sem dekkið
titrar rninna. í reiknilíkaninu er
gert ráð fyrir að yfirborð vegar sé
malbik af komastærð 12-16 mm
og 1-20 ára gamalt. Annað yfir-
borð getur haft áhrif á hljóðstig-
ið. Nýtt malbik lækkar hljóðstig
um 1-2 dB. Opið gropið malbik
(porous asfalt) lækkar hljóðstig
um 1-3 dB. Hljóðstig frá steyptu
yfirborði er að jafnaði 1-2 dB
hærra en frá malbiki, en þó er
hægt að búa til steypuyfirborð
þar sem hljóðstig er um 1 dB
lægra en frá malbiki sem notað
er sem viðmiðunaryfirborð.
2. Vindur. Gert er ráð fyrir hægum
andvara ffá umferð til athugunar-
staðar. Meiri vindur og vindátt
hefur áhrif á útbreiðslu hljóðs. I
meðvindi berst hljóðið betur en í
logni. I mótvindi myndast skuggi
þar sem hljóðstig er lægra. Um-
ferðarhávaði við hús getur breyst
um 5 dB eða meira eftir því
hvort það er meðvindur eða mót-
vindur.
3. Þurrt vegyfirborð. Gert er ráð
fyrir að vegyfirborð sé þurrt.
Ekki er gert ráð fyrir blautu veg-
yfirborði eða snjó.
4. Nagladekk. Ekki er gert ráð fýrir
að bílar séu með nagladekk. Við
sama umferðarhraða er hávaði
meiri frá bílum sem aka á nagla-
dekkjum.
Þróuð hafa verið tölvuforrit til að
meta umferðarhávaða með framan-
greindum reiknireglum. Eitt öflug-
asta forritið sem þróað hefur verið á
Norðurlöndunum til að reikna um-
ferðarhávaða kallast TST0Y og
hefur verið þróað í samvinnu rann-
sóknastofhunarinnar SINTEF í Nor-
egi og norsku vegagerðarinnar. For-
ritið byggist á þeim forsendum sem
settar eru fram í framangreindu
„samnorrænu reiknilíkani“ og reikn-
ar í samræmi við þær kröfur sem
settar eru fram í mengunarvarna-
reglugerðinni. Forritið vinnur með
kortagrunn og reiknar hljóðstig að
teknu tilliti til umferðar á nálægum
vegum og að teknu tilliti til breyti-
leika í landslagi.
Leiðir til varnar
Skipulag hverfa
Við skipulag nýrra hverfa er
nauðsynlegt að gera sér grein fyrir
hljóðstigi og skipuleggja hverfið
með tilliti til þess. Ef íbúðahverfið
er nærri umferðargötum fer hljóð-
stig á opnu svæði oft yfir þau mörk
sem sett eru i mengunarvamareglu-
gerð. Með skipulagsvinnunni er
möguleiki á að veija opin svæði og
40